flugfréttir
1.800 verkfræðingar hafa látið af störfum hjá Boeing
- Sögðu upp sjálfviljugir og þáðu starfslokagreiðslu
Starfsmenn Boeing í Seattle
Hátt í 2.000 verkfræðingar hafa sjálfviljugir látið af störfum hjá Boeing sem er liður framleiðandans í að draga úr rekstrarkostnaði með því að fækka starfsfólki.
Um er að ræða 1,880 verkfræðinga sem eru meðlimir í stéttarfélaginu International Association of Machinists and Aerospace Workers (IAM) sem tóku starfslokatilboði
sem Boeing kynnti fyrir þeim fyrir ári síðan sem hljómaði upp á hálfs árs laun á einu bretti
gegn því að þeir myndu segja upp störfum.
„Þetta eru allt sjálfboðaliðar sem voru hvort eð er að íhuga uppsögn eða höfðu önnur áform
varðandi atvinnumál“, segir Connie Kelliher, talsmaður stéttarfélagsins IAM.
Boeing segir að verið sé að draga úr kostnaði með því að hagræða störfum til að mæta
breyttu rekstarumhverfi og verði það gert með því að hvetja þá starfsmenn til að segja upp störfum
án þess að komi til beinna uppsagna.
Um 74,600 starfsmenn störfuðu við farþegaþotudeild Boeing í Seattle í febrúarmánuði og
er gert ráð fyrir að fleiri munu segja upp störfum árið 2017 en ekki er víst hversu margir
verði látnir fara á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.