flugfréttir
Aer Lingus pantar sjö Airbus A321LR þotur
- Munu leysa af hólmi Boeing 757 vélarnar í flugi yfir Atlantshafið
Tölvugerð mynd af Airbus A321neo þotunni
Írska flugfélagið Aer Lingus hefur gert samning við flugvélaleiguna Air Lease Corporation (ALC) um leigu á sjö farþegaþotum af gerðinni Airbus A321LR sem er langdrægari útgáfa af arftaka Airbus A321.
Um miðjan febrúar fóru sögusagnir á kreik um að International Airlines Group (IAG),
móðurfélag Aer Lingus, væri að ganga frá pöntun í Airbus A321LR og hefur nú komið
í ljós pöntunin sé orðin að veruleika.
Aer Lingus mun nota Airbus A321LR þoturnar til að leysa af hólmi þær Boeing 757 vélar
sem félagið hefur haft á leigu frá árinu 2014 en félagið hefur notað þær
í flugi yfir Atlantshafið milli Írlands og austurstrandar Bandaríkjanna.
Aer Lingus bað flugvélaleiguna ALC um tilboð í sjö Airbus A321LR þotur í nóvember
í fyrra en flugvélaleigan pantaði þessar vélar árið 2015, sama ár og Airbus kynnti
þessa þotu fyrst til leiks.
Vélarnar verða teknar á langtímaleigu og verður fyrsta A321LR þotan afhent
vorið 2019 til Aer Lingus auk tveggja annarra það árið en hinar fjórar verða afhentar
til ársins 2020.
„Airbus A321LR þoturnar munu gera Aer Lingus kleift að skipta út þeim Boeing 757 þotum
sem þeir hafa auk þess sem félagið mun gæta bætt við fleiri áfangastöðum
í Bandaríkjunum og í Kanada“, segir Steven Udvar-Hazy, framkvæmdarstjóri Air Lease
Corporation.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.