flugfréttir
Airbus sér fram á 30 prósent færri pantanir í nýjar þotur
Frá verksmiðjum Airbus í Toulouse
Airbus gerir ráð fyrir að pantanir í nýjar farþegaþotur muni dragast saman um allt að 30 prósent á þessu ári samanborðið við þær pantanir sem gerðar voru í fyrra.
John Leahy, sölustjóri Airbus, gerir ráð fyrir að flugfélög heimsins muni panta í ár
yfir 1,000 farþegaþotur en árið 2016 lögðu flugfélögin inn pantanir í kringum 1,400
þotur.
Þetta kom fram á ISTAT Americas (International Society of Transport Aircraft Trading)
ráðstefnunni sem lýkur í dag í San Diego í Bandaríkjunum.
Leahy tók ekki fram hversu margar pantanir Airbus gerir ráð fyrir að fá í ár en
hann telur að afhendingar á nýjum þotum eigi eftir að dala eitthvað örlítið frá því í fyrra.
Hvorki Airbus né Boeing hafa gefið út nákvæma spá yfir farþegaþoturpantanir fyrir árið
2017.
Þá bætti John Leahy við að ekki sé von á neinum nýjungum í þróun og framleiðslu
á þeim þotum sem Airbus framleiðir í dag.
„Við erum ekki að áætla neinar umfangsmiklar nýjungar á næstu árum. Við munum
áfram gera endurbætur samt sem áður eins og áður hefur verið“, segir Leahy.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.