flugfréttir
WestJet bætir 737 MAX 9 við pöntun sín í MAX vélarnar
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum WestJet
Kanadíska flugfélagið WestJet hefur bætt Boeing 737 MAX 9 við pöntun sína sem félagið lagði inn árið 2013 þegar pantaðar voru 65 Boeing 737 MAX þotur.
Upphaflega pöntun hljómaði upp á fjörutíu Boeing 737 MAX 8 þotur og 25 Boeing 737 MAX 9.
WestJet birti á dögunum afkomu sína eftir árið 2016 og kemur þar fram að í stað
fjörutíu véla af gerðinni 737 MAX 8 þá inniheldur pöntunin núna þrjátíu 737 MAX 8 vélar
og 10 af gerðinni 737 MAX 9.
WestJet hefur einnig kauprétt á 10 Boeing 737 MAX vélum til viðbótar árið 2020
með möguleika á að breyta pöntuninni í aðrar undirtegundir.
WestJet á von á því að fá fjórar Boeing 737 MAX þotur á þessu ári
sem verða af gerðinni MAX 8.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.