flugfréttir

Mögulegur kaupandi fundinn að Fokker-vélum Flugfélags Íslands

- Gætu farið af landi brott á næstu vikum eftir tæpt ár í geymslu

7. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:31

TF-JMN í skýli 885 á Keflavíkurflugvelli / Ljósmynd: Friðrik Friðriksson

Fjórar Fokker 50 vélar, sem áður flugu fyrir Flugfélag Íslands, eru komnar í söluferli en vélarnar hafa verið í geymslu hér á landi frá því þær voru teknar úr umferð sl. vor.

Fokker 50 vélarnar voru teknar úr umferð í kjölfar endurnýjun á flugflota félagsins sem leysti þær af hólmi með Bombardier Dash-8 Q400 vélunum nýju sem sinna í dag innanlandsflugi auk tveggja Dash-8 Q200 véla.

Flugfélag Íslands hafði sex Fokker 50 vélar í flota sínum en sú fyrsta kom hingað til lands árið 1992 og höfðu þær verið stoð og stytta innanlandsflugsins í 26 ár en saga Fokker-vélanna í íslenskri flugsögu nær aftur til ársins 1965.

Tvær af þessum vélum (TF-JMO og TF-JMM) eignuðust fyrir tveimur árum síðan nýtt líf í Kongó og voru þær ferjaðar þangað í ársbyrjun 2014.

TF-JMR í geymslu í skýli 885 á Keflavíkurflugvelli

Hinar fjórar hafa verið í geymslu hér á landi, þrjár á Keflavíkurflugvelli og ein á Reykjavíkurflugvelli en framtíð þeirra hefur verið spurningamerki í augum sumra sem hafa velt því fyrir sér hver örlög vélanna verður.

Að sögn Árna Gunnarssonar, framkvæmdarstjóra Flugfélags Íslands, þá standa yfir viðræður við ákveðin aðila um sölu á vélunum.

Ekki vitað hvert vélarnar munu fara á endanum eftir kaupin

„Það er ekki búið að ganga frá neinu. Það er ákveðið ferli í gangi og erum við í viðræðum við einn aðila“, segir Árni sem tekur fram að unnið er að því að viðkomandi viðskiptavinur muni taka allar vélarnar.

TF-JMT er þriðja vélin sem hefur verið í geymslu

Ekki er óalgengt að í flugvélakaupum hvíli leynd yfir viðskiptavinum varðandi sölu á nýjum og notuðum vélum og er ekki gefið upp hvaða aðili ætlar sér að kaupa vélarnar á þessum tímapuntki en viðskiptavinurinn er flugvélaleiga.

„Þetta er aðili sem er eignaraðili að vélum þannig við vitum ekki hvert vélarnar fara þegar upp er staðið“, segir Árni.

Að sögn Árna eru vélarnar í flughæfu ástandi og eru þær í svokölluðu „geymsluprógrammi“ (storage program) sem tryggir að án mikillar fyrirhafnar verður hægt að gera þær flughæfar samkvæmt reglugerðum með litlum fyrirvara.

Gert er ráð fyrir því að ferlinu varðandi sölu á vélunum ljúki á næstu vikum eða mánuðum og munu þær þá yfirgefa landið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga