flugfréttir
Boeing frumsýnir fyrstu 737 MAX 9 þotuna
N7379E er fyrsta Boeing 737 MAX 9 þotan sem smíðuð hefur verið
Boeing frumsýndi í gær fyrsta eintakið af Boeing 737 MAX 9 þotunni sem er önnur undirtegundin af MAX vélunum þremur en framleiðsla á Boeing 737 MAX 8 er þegar komin á fullt skrið þótt sú vél hafi ekki enn verið afhent.
Fyrsta Boeing 737 MAX 9 tilraunavélin ber skráninguna N7379E og var henni út úr úr samsetningarsal Boeing
í Renton klukkan 17:00 að íslenskum tíma í gær.
Tilraunir með rafkerfi munu hefjast á næstunni og verða öll kerfi um borð athuguð fyrir jómfrúarflugið en stefnt er á að vélin muni fljúga sitt fyrsta tilraunaflug í apríl.
Boeing 737 MAX 9 mun fljúga sitt fyrsta flug í apríl
Boeing 737 MAX 9 er arftaki Boeing 737-900 og 737-900ER vélanna sem komu á markaðinn árið 1997. Sú vél var pöntuð í
547 eintökum en í dag hafa 11 flugfélög pantað 418 eintök af Boeing 737 MAX 9.
Lágfargjaldafélagið Lion Air í Indónesíu hefur flestar pantanirnar í 737 MAX 9 en félagið á von á 200 þotum
af þessari gerð og verður félagið einnig það fyrsta til að fá hana afhenta árið 2018.
Önnur flugfélög sem hafa lagt inn pöntun í Boeing 737 MAX 9 er United Airlines, Alaska Airlines, Icelandair, Turkish
Airlines, TUI Travel, WestJet og Air Canada.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.