flugfréttir
Skortur á klósettpappír og heyrnartólum olli 5 tíma seinkun
- British Airways þarf að greiða um 34 milljónir króna í skaðbætur
Boeing 777-200 þota British Airways á Gatwick-flugvellinum
British Airways á yfir höfði sér sekt upp á allt að 34 milljónir króna vegna klúðurs þar sem bæði vantaði klósettpappír um borð í farþegaþotu félagsins fyrir flug til Karíbahafsins auk þess sem fluginu seinkaði þar sem ekki voru rétt heyrnartól um borð fyrir farþega.
Atvikið átti sér stað sl. sunnudag þegar til stóð að fljúga Boeing 777 þotu British Airways frá
Gatwick-flugvellinum í London til Bridgetown á Barbados í Karíbahafi.
Brottförinni seinkaði um næstum tvær klukkustundir þar sem í ljós kom að undirbúningur af hálfu
starfsmanna á flugvellinum hafði eitthvað farið úr böndunum þar sem ekki var rétt tegund af heyrnartólum
um borð auk þess sem í ljós kom að salernispappír vantaði á öll salernin.
Farþegarnir voru búnir að koma sér fyrir þegar klúðrið uppgötvaðist og þurftu allir að yfirgefa vélina
en seinkunin varð til þess að áhöfnin gat ekki flogið vélinni þar sem hún hefði farið yfir leyfilegan
vinnutíma áður en vélin myndi lenda á Barbados.
Vélin gat ekki hafið sig á loft þar sem klósettpappír vantaði á salernin
um borð
Kalla þurfti til aðra áhöfn sem tók 3 klukkustundir og fór vélin loksins í loftið klukkan 20:15 á sunnudagskvöldinu
en upphaflegur brottfarartími var kl. 13:40.
Flugstjóri vélarinnar, sem hefur flogið fyrir félagið í 26 ár, sagði að hann hafi aldrei orðið vitni
að öðru eins atviki sem hafði seinkað fluginu eins mikið og þennan daginn en British Airways hafði skipt um þjónustuaðila á Gatwick-flugvellinum seinustu mánaðarmót.
Hver farþegi sem átti bókað flug með félaginu hefur rétt á allt að 70.000 krónum í bætur
vegna seinkunarinnar en fyrirtæki, sem sérhæfir sig í að sækja rétt til flugfélaga fyrir hönd farþega, hefur
þegar haft samband við þá farþega sem tjáðu sig um seinkunina á samskiptamiðlum.
Álíka stór hópur farþega, sem átti bókað flug til baka frá Bridgetown, varð einnig fyrir seinkunum
og hefur British Airways nú þegar fengið reikning fyrir skaðabótum upp á 33.5 milljónir króna.
British Airways harmar það að farþegarnir hafi orðið fyrir seinkun sem var tilkomin þar
sem nokkrum hlutum var ekki komið fyrir um borð sem eru nauðsynlegir til að veita þá þjónustu
sem verður að vera til staðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.