flugfréttir

Biman Bangladesh hyggst loka sjö söluskrifstofum í heiminum

- Hafa ekki flogið til sumra borga í 11 ár en samt með erlendar skrifstofur

8. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:03

Boeing 777-300ER farþegaþota Biman Bangladesh

Biman Bangladesh hefur tilkynnt að félagið ætli að loka sjö skrifstofum í heiminum í þeim tilgangi að draga úr rekstarkostnaði félagsins en félagið hefur ekki flogið til sumra áfangastaða í 11 ár en samt haft skrifstofur starfræktar í þeim borgum.

Ákvörðunin bíður nú samþykktar stjórnarinnar en þær söluskrifstofur sem stendur til að loka eru staðsettar í New York, Róm, Toronto, Manchester, Hong Kong, Bahrain og Delhi.

Biman Bangladesh hætti að fljúga til Kennedy-flugvallarins í New York árið 2006 þar sem félagið tapaði um 6,8 milljónum króna á hverju flugi sem félagið flaug til JFK.

Félagið flaug einnig til Rómar, Frankfurt, Manchester og til Brussel en hætti að fljúga til allra þeirra borga árið 2007.

Flug til Manchester hófst að nýju árið 2012 og var flogið þangað í stuttan tíma til viðbótar og þá hófst flug að nýju til Rómar árið 2014 en félagið hætti fluginu mjög fljótlega þar sem tapreksturinn við flugið var of mikill.

Þá var einnig bundinn endir á áætlunarflug til Hong Kong og til Delhi árið 2014.

Undirstjórn Biman Bangladesh mælir því því að starfsmenn í þessum borgum verði allir kallaðir heim aftur á næstu þremur mánuðum.

Alls hefur Biman Bangladesh hætt flugi til 21 borga í heiminum sem félagið flaug áður til þegar það man fífil sinn fegurri en London Heathrow er í dag eini flugvöllurinn sem félagið flýgur til í Evrópu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga