flugfréttir
Boeing og Embraer frumsýndu tvær nýjar þotur í gær
- Boeing 737 MAX 9 og Embraer E195-E2 ýtt út úr samsetningu
Fyrsta Embraer E195-E2 þotan fyrir framan verksmiðjur Embraer í Sao Jose dos Campos í Brasilíu í gær
Það er ekki á hverjum degi sem að ný farþegaflugvél er kynnt og ýtt út úr samsetningarsal þótt það eigi sér stað nokkrum sinnum á ári en því síður að tvær nýjar þotur eru kynntar sama daginn hjá sitthvorum framleiðandanum.
Í gær voru þó tveir flugvélaframleiðendur sem sýndu fyrsta eintakið af nýjum þotum
og í báðum tilvikum var verið verið að sýna fyrsta eintakið af öðrum fjölskyldumeðlimnum af
þremur.
Boeing ýtti út úr samsetningarsal í Renton í Washington fyrstu Boeing 737 MAX 9 þotunni en á sama tíma
í 10,929 kílómetra fjarlægð var Embraer í Brasilíu að ýta út úr samsentingu fyrsta eintakinu af Embraer E195-E2
þotunni.
Fyrsta Boeing 737 MAX 9 tilraunavélin ber skráninguna N7379E og var henni út úr úr samsetningarsal Boeing
í Renton klukkan 17:00 að íslenskum tíma í gær.
Tilraunir með rafkerfi munu hefjast á næstunni og verða öll kerfi um borð athuguð fyrir jómfrúarflugið en stefnt er á að vélin muni fljúga sitt fyrsta tilraunaflug í apríl.
Boeing 737 MAX 9 mun fljúga sitt fyrsta flug í apríl
Boeing 737 MAX 9 er arftaki Boeing 737-900 og 737-900ER vélanna sem komu á markaðinn árið 1997. Sú vél var pöntuð í
547 eintökum en í dag hafa 11 flugfélög pantað 418 eintök af Boeing 737 MAX 9.
Lágfargjaldafélagið Lion Air í Indónesíu hefur flestar pantanirnar í 737 MAX 9 en félagið á von á 200 þotum
af þessari gerð og verður félagið einnig það fyrsta til að fá hana afhenta árið 2018.
Önnur flugfélög sem hafa lagt inn pöntun í Boeing 737 MAX 9 er United Airlines, Alaska Airlines, Icelandair, Turkish
Airlines, TUI Travel, WestJet og Air Canada.
Stærsta E2 þotan ýtt út samsetningu
Embraer E195-E2 er stærsti meðlimurinn af E2 vélunum sem er næsta kynslóð af farþegaþotum
Embraer en ár er síðan að fyrstu E2-þotunni var ýtt út úr samsetningarsal þann 26. febrúar
2016 sem var E190-E2 vélin.
Embraer E195-E2 mun geta tekið allt að 146 farþega eða 120 farþega á tveimur
farrýmum en vélin mun leysa af hólmi
Embraer 195 þotuna sem er að finna í flota fjölda flugfélaga um allan heim sem fljúga
styttri flugleiðir.
Embraer segir að E195-E2 þotan sé allt að 20% sparneytnari samanborið við stærri
þotur og þá kemur vélin með nýrri kynslóð af „fly-by-wire“ tækninni sem lágmarkar
drag og þyngdaráhrif vélarinnar sem gerir hana sparneytnari á flugi.
Embraer E195-E2 þotan við athöfnina í gær
Þá segir Embraer að E195-E2 eyði allt að 24% minna eldsneyti en Embraer 195 þotan
sem kom á markaðinn árið 2006 og þá er viðhaldskostnaðurinn allt að 20 prósentum lægri.
Tvær tilraunaþotur af þessari gerð munu sinna tilraunaflugi og munu þær fljúga báðar
sitt fyrsta flug síðar á þessu ári en afhendingar munu hefjast árið 2019.
Alls hafa 4 flugfélög lagt inn pöntun í 90 eintök af Embraer E195-E2 en þau félög
eru Air Costa á Indlandi, Azul Brazilian Airlines og flugvélaleigurnar Aircastle
og ILFC.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.