flugfréttir

Japanir vilja svarta kassa í litlar einkaflugvélar

8. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:27

Að meðaltali verða 10 flugslys á ári í Japan og eru þau flest í einkafluginu

Samgönguörygginefnd Japans er að íhuga að fara fram á að einkaflugvélar verði líka útbúnar svörtum kössum líkt og stórar þotur í ljósi fjölda flugslysa í einkafluginu í Japan.

Algengt er að flugmenn láti lífið í flugslysum í einkaflugi og er því erfitt fyrir flugmálayfirvöld að komast að orsök slyssins í þeim tilvikum þar sem litlar flugvélar koma ekki með hljóðrita né flugrita.

Í júlí árið 2015 fórst lítil flugvél og brotlenti inn í húsi í japönsku borginni Chofu með þeim afleiðingum að átta létu lífið auk íbúa sem voru í húsinu.

Mánuði síðar, í ágúst 2015, létust tveir er fisflugvél fórst á golfvelli í Tsukuba og í mars árið 2016 áttu sér stað tvö flugslys þar sem lítil flugvél fórst í flugtaki og svifflugvél skall til jarðar í íbúðarhverfi í Japan.

Að meðaltali eru um 10 flugslys í Japan þar sem litlar einkaflugvélar eiga í hlut en verst var ástandið árið 2015 þegar 24 flugslys voru skráð í landinu sem hefur yfir 1.400 einkaflugvélar.

Af vettfangi flugslyss í Japan árið 2016

Í 96% tilvika þar sem flugslys eiga sér stað í Japan er um að ræða litlar vélar, fisflugvélar og svifflugur en algengasta orsökin slyssanna má rekja til mannlegra mistaka þar sem t.d. hefur gleymst að setja niður hjól fyrir lendingu, eldsneytisskortur eða þar sem vél er flogið í of lágri hæð.

Í nokkrum tilvikum hefur ekki verið hægt að komast að orsök slyssins þar sem flugmaðurinn, og þeir sem voru um borð í vélinni, lifðu slysið ekki af og er því ómögulegt að komast að því hvað í raun og veru gerðist sem olli slysinu.

Þar af leiðandi hefur samgönguöryggisstofnunin í Japan hrint í framkvæmt aðgerðaráætlun sem miðar af því að athuga hvort hentugur kostur sé að skylda litlar flugvélar til að vera útbúnar hljóðrita og flugrita til að auðvelda flugslysarannsókn.

Mögulega væri nóg að slíkur útbúnaður væri svipaður og finna má í bílum þar sem hægt er að fylgjast með ökuferðum bílstjóra.

Þá er einnig verið skoða möguleika á að koma fyrir loftpúðum í flugvélum líkt og er að finna í bílum til að draga úr högginu sem flugmenn og farþegar verða fyrir.

„Öryggisatriði í einkafluginu eru ábótavant. Upptökutæki ætti að vera staðalbúnaður í litlum vélum þar sem það getur verið erfiðara að stjórna lítilli flugvél samanborið við stóru farþegaþoturnar þar sem þær eru næmari fyrir vindi og öðrum aðstæðum“, segir Hajime Tozaki, prófessor við Otsuma-háskólann í Japan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga