flugfréttir

Rússar ætla að fjárfesta í Ilyushin fyrir tugi milljarða

- Segir Rússa ekki vera að framleiða nógu margar flugvélar á ári

9. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:13

Ilyushin Il-114-100 flugvélin sem smíðuð var árið 1992 en til stendur að hefja framleiðslu á henni á ný á Indlandi

Rússneska ríkisstjórnin ætlar að fjárfesta í flugvélaframleiðandanum Ilyushin fyrir um 69 milljarða króna í ár með því að setja fé í framleiðslu á Ilyushin Il-114-300 skrúfuvélina auk þess sem til stendur að setja fjármagn í nýja útgáfu af Il-96 breiðþotunni.

Fjármögnunin var gerð opinber við upphaf þingsins í Mosvku af forsetisráðherranum, Dmitry Rogozin, sem tók fram að rússneskur flugvélaiðnaður framleiðir um 30 farþegaflugvélar á ári sem er alls ekki nóg til þess að ná ásættanlegri hlutdeild í rússneska markaðnum en flest flugfélög í Rússlandi eru að panta vestrænar þotur.

Úr verksmiðjum Ilyushin

Rússneski flugvélarisinn United Aircraft Corporation (UAC) áætlar að rússnesk flugfélög þurfi um 1.100 þotur á næstu 20 árum sem taka þrjátíu farþega í sæti.

Þá er talið að rússnesk flugfélög þurfi 200 vélar með sætum fyrir 120 farþega og 230 breiðþotur. Þess má geta að flugumferð í Rússlandi eykst um 4% á hverju ári.

Árið 2015 tilkynnti UAC að til stæða að endurvekja framleiðslu á Ilyushin IL-114 flugvélinni sem er tveggja mótora skrúfuflugvél sem var hönnuð á níunda áratugnum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga