flugfréttir
Flugmenn og flugvirkjar slógust í stjórnklefa hjá Tunisair
- Felldu niður allt flug tímabundið í morgun
Airbus A320 þota Tunisair á Carthage-flugvellinum í Túnisborg
Tunisair tilkynnti í morgun að félagið hefði tekið þá ákvörðun að fella niður allt áætlunarflug í dag tímabundið.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá flugfélaginu en ástæðan
er sögð vegna aukinnar spennu milli flugmanna og flugvirkja sem
starfa hjá flugfélaginu.
Kornið sem fyllti mælinn voru slagsmál sem brutust út milli flugvirkja
og flugmanna í stjórnklefa á Airbus A320 farþegaþotu á flugvellinum í Túnisborg
í morgun skömmu fyrir brottför til Parísar.
Starfsmannafélag atvinnuflugmanna hjá Tunisair og starfsmannafélag
flugvirkja hafa átt í miklum deilum að undnaförnu og varð það heitt
í kolunum að til handalögmála kom í morgun í stjórnklefa þegar verið var að undirbúa flug TU716 til Charles de Gaulles flugvallarins.
Stjórn félagsins ákvað í morgun að fella niður allt flug að öryggisástæðum
vegna málsins en um eittleytið í dag tilkynnti Tunisair að félagið myndi halda
flugáætlun sinni áfram og er flug að komast aftur í eðlilegt horf.
Frá flugvellinum í Túnisborg
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.