flugfréttir
Von á lokaskýrslu vegna hvarfs flugs MH370 á þessu ári
Boeing 777 þotan sem hvarf, 9M-MRO
Von er á lokaskýrslu varðandi hvarf malasísku farþegaþotunnar á þessu ári og verður hún gefin út þrátt fyrir að flugvélin hafi aldrei fundist. Á meðan sumir fjölmiðlar taka fram að skýrslan verði birt á næstu mánuðum þá hefur einnig verið sagt að hún komi út fyrir lok ársins 2017.
Síðastliðinn þriðjudag voru 3 ár frá því að malasíska farþegaþotan, flug MH370, hvarf
sporlaust yfir Tælandsflóa á leið frá Kuala Lumpur til Peking með 239 manns um borð.
Rannsóknarnefndin, sem hefur annast rannsókn hvarfsins, sem ekki er enn formlega
skráð sem flugslys, hefur unnið að því að ljúka við lokaskýrsluna en þrátt fyrir það
er næstum öllum spurningum ósvarað.
Unnið er út frá átta meginþáttum og meðal annars er reynt að varpa ljósi á það hvers
vegna vélin flaug út af áætlaðri flugleið, gert verður grein fyrir flugmönnunum sem
flugu vélinni og áhöfninni og birtar upplýsingar um mögulegt eðli brotlendingarinnar og
innihaldi og magn þess farms sem var um borð.
Samgönguráðherrann malasíski, Liow Tiong Lai
„Þar sem vélin hefur ekki fundist og ekki heldur flugritinn né hljóðritinn þá
er ennþá of mikill skortur á sönnunargögnum í málinu til að gera sér grein fyrir
því hvers vegna vélin flaug af áætlaðri flugleið“, segir í yfirlýsingu.
„Malasía hefur ekkert að fela er kemur að MH370“
Þrjú lönd, Kína, Malasía og Ástralía, hafa í tæp 3 ár leitað að flaki vélarinnar lengst
suður í Indlandshafi þar sem talið er að vélin hafi endað för sína og farið í sjóinn
sökum eldsneytisskorts en búið er að leita á svæði sem er stærra en flatarmál Íslands.
Formlegri leit var hætt þann 17. janúar og var ákveðið að ekki myndi hefjast ný
leit nema að nýjar upplýsingar myndu koma fram.
„Ákvörðunin um að hætta leit er alls ekki endirinn á því að komast að því hvað varð um
flugvélina“, sagði Liow Tiong Lai, samgönguráðherra Malasíu á blaðamannafundi.
Malasísk stjórnvöld hafa lengi verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki sett öll spilin upp á borðið frá því vélin hvarf en Liow Tiong Lai tók fram á malasíska þinginu
að stjórnvöld í Malasíu hafa ekkert að fela.
„Við höfum gefið allar þær upplýsingar sem við höfum að geyma til rannsóknarnefndarinnar og skýrslan mun koma út fyrir lok ársins“, sagði Liow Tiong Lai.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.