flugfréttir

Icelandair valið frumlegasta og hugmyndaríkasta félagið

- Icelandair hlýtur „Gullpálmann“ í Berlín

10. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:02

Úr „Stop Over Buddy“ auglýsingu Icelandair

Icelandair hlaut í gær hin eftirsóttu verðlaun þýsku ferðaþjónustunnar „Gullpálmann“ fyrir árið 2016 en verðlaunin, sem eru stundum kölluð óskarsverðlaun þýskrar ferðaþjónustu hafa verið veitt síðustu 20 árin á stærstu ferðakaupstefnu veraldar, ITB sem nú stendur yfir í Berlín.

Verðlaunin eru veitt í 6 mismunandi flokkum, m.a. ferðaskrifstofum og áfangastöðum sem dómnefndin telur að hafi skarað fram úr á árinu. Icelandair er eina flugfélagið sem verðlaunað var að þessu sinni. Verðlaunin hlýtur Icelandair sem „frumlegasta og hugmyndaríkasta flugfélag ársins“ í Evrópu.

Í niðurstöðu dómnefndar segir að Icelandair hafi sýnt skemmtilega hugkvæmni og aðdáunarvert frumkvæði með því að virkja starfsfólk flugfélagsins til að gera svokölluðum „stop-over-farþegum“, sem gera stuttan stans á Íslandi á leið sinni milli Evrópu og Norður-Ameríku, Íslandsdvölina eftirminnilega.

Það hafi verið einróma álit þeirra sem nutu þessarar svokölluðu „Stop-over-buddy“-þjónustu, þar sem starfsmenn kynntu farþegum flugfélagsins „sitt“ Ísland, að þetta hafi verið sannkallað ævintýri fyrir hina erlendu gesti.

Stopver Buddy auglýsing Icelandair

Ein af forsendum þess að Icelandair hlýtur umrædda viðurkenningu er einnig sögð hafa verið sú að dagblaðið Süddeutsche Zeitung, sem er einn virtasti fjölmiðill Þýskalands, hafi séð ástæðu til að gera umræddu „buddy“-verkefni flugfélagsins ítarleg skil.

Í tengslum við verðlaunaafhendinguna sem fram fór í glæsilegu samkomuhúsi Bertelsmann-stofnunarinnar við hina sögufrægu breiðgötu  „Unter den Linden“ í Berlín í gærkvöldi, að viðstöddum fjölda boðsgesta úr opinberu lífi höfuðborgarinnar, hlýtur flugfélagið einnig veglega kynningu í nýjasta hefti tímaristins GEO Saison, sem er eitt víðlesnasta ferðamálatímarit Þýskalands.

Meðal þeirra sem standa að umræddum verðlaunum er útgáfufyrirtækið Gruner und Jahr, sem gefur út fjölda vinsælla tímarita um ferðamál, auk hins þekkta vikurits „Stern“.

„Það er ótvírætt mikill heiður fyrir Icelandair að hljóta þessi „óskarsverðlaun“ þýskrar ferðaþjónustu, ekki síst þegar haft er í huga að í dómnefndinni sitja nokkrir reyndustu og áhrifamestu ferðamálafrömuðir Þýskalands“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

Á myndinni tekur Arthur Björgvin Bollason, fjölmiðlafulltrúi Icelandair í Þýskalandi, við verðlaununum í Berlín í gærkvöldi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga