flugfréttir

Telja Boeing 737 hafa verið allt of lágt í aðflugi að St. Maarten

- WestJet segir að vélin hafi ekki farið niður í óeðlilega flughæð

10. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:27

Boeing 737-800 þota WestJet í óvenjulega lágu aðflug að St. Maarten

Kona ein, sem var að mynda flugvélar af þaki íbúðar á eyjunni St. Maarten í Karíbahafi, náði þessari ljósmynd sem sýnir atvik þar sem farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 flaug mjög nálægt yfirborði sjávar í aðflugi að hinum fræga Princess Juliana flugvelli.

Um var að ræða vél af gerðinni Boeing 737-800 frá kanadíska flugfélaginu WestJet í „Frozen-litabúningi“ Disney sem var að koma frá Toronto sl. þriðjudag.

Kona ein að nafni Christine Garner tók eftirfarandi ljósmynd og sagði hún hafa næstum því fengið áfall því hún hélt að vélin ætlaði í sjóinn.

„Þegar flugvélin kom í gegnum skýin þá kom það mér á óvart hversu lágt hún flaug og hún var mun lægra á lofti en ég. Venjulega þá eru þær að koma inn í sömu hæð eða aðeins ofar“, segir Garner.

Atvikið átti sér stað sl. þriðjudag (7. mars)

Flugmennirnir hættu við lendinguna skömmu síðar, fóru í fráflug („go around“) og lenti vélin 45 mínútum síðar.

Lauren Stewart, talsmaður WestJet, segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hefur undir höndum þá hafi ekkert óeðlilegt átt sér stað í aðfluginu og hafi vélin aldrei farið undir 500 fet áður en hún hætti við lendinguna.

Aðrir flugmenn og sérfræðingar í fluginu eru þó ekki á sama máli og segja að vélin hafi verið komin hættulega lágt nálægt sjónum.

„Ég þori að veðja upp á pening að þeir voru komnir niður í 50 fet“, segir flugstjóri einn sem flýgur Boeing 737, vél sem er sömu gerðar. - „Að vera svona lágt og það ekki yfir flugbraut er hreinlega mjög hættulegt“, segir flugstjórinn.

Annar flugstjóri, sem er með 20.000 tíma að baki, sem einnig hefur séð myndina segir: „Það er augljóst að lengd upp á hálft vænghaf vélarinnar skilur að fjarlægðina við sjóinn. Það sést líka á hvernig hreyflarnir ýfa upp hafflötinn“.

Farþegi einn, sem var um borð í vélinni, segir að skyndilega hafi vélin rifið sig aftur upp í loftið eftir að hafa farið mjög nálægt sjónnum. - „Þetta var eins og að vera í rússíbana. Svo tók vélin skarpa beygju til hægri í klifrinu og engin um borð sagði neitt á meðan“, segir farþeginn.

WestJet svaraði fyrir flugfélagið og tók fram að atvikið verði skoðað og komist að því hvað átti sér stað.

Vélin í næsta aðflugi og var hún þá komin í eðlilega hæð







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga