flugfréttir
Iran Air fær fyrstu Airbus A330 breiðþotuna afhenta
- Önnur nýja þotan sem Iran Air fær frá Airbus
Fyrsta Airbus A330-200 breiðþota Iran Air lendir á flugvellinum í Teheran eftir afhendingarflug frá Toulouse
Iran Air hefur tekið við sinni fyrstu, nýju breiðþotu sem félagið hefur fengið afhenta í nokkra áratugi frá því viðskiptahöft voru sett á Íran á áttunda áratugnum.
Breiðþotan er af gerðinni Airbus A330-200 og var vélin afhent frá verksmiðjum Airbus í
Toulouse þann 10. mars.
Iran Air á von á tíu Airbus A330 breiðþotum sem allar eru af gerðinni A330-200 en þá á félagið eftir að fá 28 Airbus A330-900neo þotur, 16 Airbus A350-1000, 32 Airbus A320neo og sex Airbus A320 þotur.
Vélin er ein af þeim 110 þotum sem Íranir pöntuðu árið 2016 en pöntunin var staðfest
í lok ársins en hætt hefur verið við þær tólf Airbus A380 risaþotur sem voru hluti af pöntuninni og
á félagið því von á 98 þotum á næstu árum.
Airbus A330 breiðþotan er önnur þotan sem Iran Air hefur fengið frá Airbus en fyrsta þotan
var afhent í janúar sem var af gerðinni Airbus A321.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.