flugfréttir
Citywing á eyjunni Mön sækir um gjaldþrotaskipti
- Flugrekstraraðilinn sviptur leyfi í kjölfar atviks
L-410 Turbolet frá Van Air Europe í litum Citywing
Breska flugfélagið Citywing hefur hætt allri starfsemi sinni og hefur félagið sótt um gjaldþrotaskipti.
Citywing hafði bækistöðvar á Isle of Man flugvellinum á eyjunni Mön og hafði félagið
saming við tékkneska flugfélagið Van Air Europe sem annaðist flugrekstur fyrir Citywing með
Let L-410 Turbolet vélum.
Í kjölfar atviks sem átti sér stað á flugvellinum í Belfast þann 23. febrúar sl. ákváðu
bresk flugmálayfirvöld að banna starfsemi Van Air Europe á Bretlandi sem hefur haft
gríðarleg áhrif á starfsemi Citywing sem hefur ekki náð að finna annan flugrekstraraðila til að fylla í skarðið.
Citywing gaf út yfirlýsingu sl. fimmtudag þar sem félagið lýsti því yfir að hætt hefði verið við allt áætlunarflug og var sótt um gjaldþrotaskipti rétt fyrir helgi.
Citywings var stofnað árið 2006 en flugfélagið hét fyrst um sinn Manx2 til að byrja með en nafni
félagsins var svo breytt árið 2012.
Félagið sinnti áætlunarflugi frá eyjunni Mön til Belfast, Blackpool, Glasgow, Gloucestershire,
Newcastle, Anglesey og Cardiff.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.