flugfréttir
Framkvæmdir að hefjast á verksmiðju Boeing í Kína
- Verða teknar í notkun á næsta ári
Framkvæmdir á verksmiðjunni munu hefjast fyrir lok mars
Framkvæmdir við nýjar verksmiðjur Boeing í Kína munu hefjast á næstu dögum en verksmiðjan verður sú fyrsta sem Boeing mun taka í notkun utan Bandaríkjanna.
Verksmiðjan mun rísa í borginni Zhoushan sem staðsett er á austurströnd Kína í um 95 kílómetra
fjarlægð suður af Shanghai.
Verksmiðjan verður hluti af fluggarði þar sem fleiri fyrirtæki í fluginu munu vera með
sambærilegan iðnað og þar á meðal kínversku flugvélaverksmiðjurnar COMAC.
Í verksmiðjum Boeing í Kína mun starfsemin snúast um að koma innréttingum og sætum
fyrir í þær Boeing 737 MAX þotur sem afhentar verða til kínverskra flugfélaga auk
þess sem vélarnar verða málaðar þar.
Boeing ætlar sér að koma fyrir innréttingum og mála um 100 þotur í nýju verksmiðjunum sem eiga eftir að skapa um 2.000 ný störf.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki eitt ár og er stefnt á að afhenda
fyrstu Boeing 737 MAX þotuna frá verksmiðjunni í Zhoushan árið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.