flugfréttir

Air India seldi fimm Boeing 777 þotur langt undir markaðsvirði

- Seldu þær til Etihad Airways árið 2013

13. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 10:54

Boeing 777-200LR þota Air India

Komið hefur í ljós að þær fimm Boeing 777-200LR farþegaþotur, sem Air India seldi til Etihad Airways árið 2013, voru keyptar á verði sem var langt undir andvirði vélanna.

Þetta er haft eftir fjármálaeftirlitsnefnd Indlands sem fór yfir viðsnúnings- og fjármálaáætlun Air India og var greint frá þessu á indverska þinginu fyrir helgi.

Fram kemur að Air India hafi selt allar Boeing 777-200LR vélarnar fimm fyrir aðeins 37 milljarða og fengið því aðeins 7,4 milljarða fyrir hverja þotu en ný Boeing 777 þota kostar um 30 milljarða.

Stjórn Air India sagði árið 2013 að tilboð Etihad Airways í vélarnar árið 2013 hafi verið það hæsta sem þeir fengu og var því ákveðið að taka því boði.

Eftirlitsnefnd fjármála ríkisins segir að 7,4 milljarðar sé mjög lágt verð fyrir Boeing 777 þotu þar sem þær voru metnar á um 11 milljarða.

Air India hefur nú þrjár Boeing 777-200LR vélar í flotanum

Air India sagði einnig að ákveðið var að selja vélarnar á þessu verði þar sem það var nóg til að greiða niður lánið á þeim og koma í veg fyrir háan viðhaldskostnað sem hefði fylgt því að hafa vélarnar áfram í flotanum.

Etihad Airways fékk vélarnar afhentar frá janúar árið 2014 fram til apríl sama ár og hefur félagið notað þær í áætlunarflugi á lengstu leiðunum frá Abu Dhabi og þar á meðal til Los Angeles.

Air India notaði vélarnar til fjarlægra áfangastaða en margir af þeim stöðum höfðu ekki verið arðbærir fyrir félagið sem hafði í för með sér mjög háan eldsneytiskostnað fyrir Air India.

LR-tegundin er ein langdrægasta farþegaþota heims og getur hún flogið meira en 17.000 kílómetra án þess að taka eldsneyti sem er um helmingi lengri vegalengd en hefðbundin 777-200 og 3.000 kílómetrum lengra flugþol en 777-200ER og 777-300ER.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga