flugfréttir

Fyrsta Airbus A320neo þota WOW air kemur í apríl

- 5 nýjar Airbus-þotur og 5 nýjar borgir í sumar

14. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:22

Fyrsta Airbus A320neo þotan á verksmiðjusvæði Airbus í Toulouse þann 27. febrúar sl.

Fimm Airbus-þotur munu bætast við í flugflota WOW air á næstunni og fram á mitt sumar og mun floti félagsins því stækka upp í 17 þotur.

WOW air mun í apríl fá sína fyrstu Airbus A320neo þotu sem er ný kynslóð af Airbus A320 vélunum en aðeins er rúmt ár síðan að Airbus afhenti fyrsta eintakið af A320neo vélinni til Lufthansa.

Mánuði síðar eða í maí í vor mun WOW air fá fyrstu Airbus A321neo þotuna og í júní mun félagið fá þrjár nýjar Airbus A321 þotur til viðbótar.

Flotfloti WOW air mun því í sumar samanstanda af þremur Airbus A330-300 breiðþotum, tíu Airbus A321, tveimur A320, einni A320neo og einni A321neo.

Fimm nýir áfangastaðir bætast við í sumar

Þá stendur til að auka tíðni til nokkurra áfangastaða og til að mynda er í bígerð að fljúga daglega til San Francisco og til Los Angeles og þá ætlar WOW air að fljúga tvisvar á dag til áfangastaða á borð við London Gatwick, París og Amsterdam.

TF-NEO verður afhent til WOW air í apríl

Fimm borgir munu bætast við leiðarkerfi WOW air í sumar en sú fyrsta sem flogið verður til er Miami (5. apríl) og þá hefst flug til Cork á Írlandi þann 19. maí.

Þann 2. júní hefst flug til Brussel og tveimur vikum síðar verður byrjað að fljúga til Pittsburgh (17. júní) sem verður sjötta borgin sem félagið mun fljúga til í Bandaríkjunum og að lokum hefst flug til Tel Aviv í Ísrael þann 22. júní.

Gert er ráð fyrir að farþegafjöldi WOW air muni tvöfaldast í ár en árið 2016 flaug 1,7 milljón farþega með félaginu en talið er að 3,1 milljón farþega muni fljúga með félaginu á þessu ári.

Flugfloti WOW air árið 2017







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga