flugfréttir

Tecnam smíðar aðra P2012 Traveller tilraunavél

14. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:00

Fyrsta P2012 Traveller vélin frá Tecnam

Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam hefur hafið framleiðslu á annarri P2012 Traveller tilraunarvélinni.

Tecnam frumsýndi P2012 Traveller vélina í apríl á seinasta ári en vélin er 11 sæta, hávængja „mini“-farþegaflugvél sem kemur með tveimur Lycoming TEO-540-C1A skrúfuhreyflum.

Vélin flaug sitt fyrsta flug í júlí í fyrra en hún er samstarfsverkefni Tecnam og Cape Air sem er eitt stærsta svæðisflugfélag Bandaríkjanna sem mun fá fyrsta eintakið afhent árið 2019.

Cape Air hefur yfir 80 vélar í flota sínum af gerðinni Cessna 402 og Britten-Normal Islanders en félagið ætlar að skipta þeim út fyrir P2012 Traveller.

P2012 Traveller vélin á flugi

Jamse Goddord, framkvæmdarstjóri Cape Air, segir samt ekki víst hversu margar vélar félagið mun taka þar sem óvissa ríkir um þann fjölda flugmanna sem eru tilkippilegir fyrir félagið vegna skorts á flugmönnum í Bandaríkjunum.

Paolo Pascale, framkvæmdarstjóri Tecnam, segir að 40 ár séu síðan að ný flugvél kom á markaðinn sem fellur undir Part-23 vottunina og sé mikil þörf á nýrri farþegaflugvél af þessari stærðargráðu.

Vélin mun koma með föstum hjólabúnaði sem gerir vélinni kleift að lenda og taka á loft á ómalbikaðri flugbraut og þá kemur vélin með stórum, ílöngum gluggum sem gefa farþegum gott útsýni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga