flugfréttir
Malaysian ætlar að fækka minni þotum og fjölga breiðþotum
Boeing 737 þotur Malaysia Airlines á flugvellinum í Kuala Lumpur
Malaysia Airlines ætlar sér að fækka Boeing 737 þotunum í flotanum en á móti stendur til að fjölga breiðþotunum.
Malaysia Airlines hefur 54 Boeing 737-800 þotur í flota sínum en þeim mun fækka niður í fimmtíu
í sumar þar sem leigusamningur á nokkrum vélum mun renna út.
Til stendur að fækka Boeing 737-800 vélunum enn frekar en félagið ætlar sér að bæta við fleiri breiðþotum
til að nota þær í staðinn fyrir þá áfangastaði sem félagið hefur notað minni þotur vegna þrengsla á flugvöllum.
Peter Bellew, framkvæmdarstjóri Malaysia Airlines, segir að félagið sé í vanda með að fá pláss á sumum flugvöllum
og sé eina leiðin í stöðunni að senda breiðþotur til að anna eftirspurninni.
Malaysia Airlines er að íhuga að bæta við fleiri Airbus A330 breiðþotum og þá er verið að skoða möguleika
á að panta Dreamliner-vélar af gerðinni Boeing 787-9 eða Airbus A330-900neo.
Bellew segir að gallinn við Boeing 787-9 sé hversu dýr sú vél er en Airbus A330-900neo væri hentugri kostur
þar sem félagið hefur nú þegar Airbus A330 breiðþotur í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.