flugfréttir

Opinn kynningardagur í Flugakademíu Keilis

- 25. mars frá klukkan 14 til 16 í aðalbyggingu skólans á Ásbrú

15. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:39

Kynningardagurinn fer fram þann 25. mars næstkomandi

Opinn kynningardagur verður í Flugakademíu Keilis laugardaginn 25. mars næstkomandi frá klukkan 14:00 til 16:00 en þar gefst áhugasömum tækifæri á því að kynnast starfsemi akademíunnar.

Hægt verður að fræðast um allt sem viðkemur einkaflugmannsnáminu, atvinnuflugmannsnáminu og flugvirkjanum auk þess sem boðið verður upp á að skoða skólann og verklega aðstöðu,

Þá gefst fólki tækifæri á því að prófa fullkominn flughermi, skoða stærsta flugvélamótor á landinu og hitta bæði kennara og nemendur.

Nemandi í flugvirkjanámi Keilis

Dagurinn er frábært tækifæri fyrir þá sem hyggja á að nám sem tengist flugi í framtíðinni og vilja kynna sér skólann frekar, námið og fá svör við spurningum sem kennarar og nemendur á staðnum munu geta veitt svör við.

Í sumar býður Flugakademía Keilis einnig upp á Flugbúðir fyrir ungt áhugafólk um flug sem og þá sem hyggja á nám innan fluggeirans.

Um er að ræða vinsæl sumarnámskeið en gríðarlegur áhugi hefur verið fyrir námskeiðunum undanfarin ár enda eru þau upplagður vettvangur til að fá innsýn inn í flugheiminn

Í Flugbúðunum er farið yfir allt það áhugaverðasta og skemmtilegasta sem kennt er í flugtengdum fögum á lifandi og skemmtilegan hátt. 

Kynningardagurinn fer fram 25. mars frá kl. 14 - 16 í aðalbyggingu skólans á Ásbrú í Reykjanesbæ







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga