flugfréttir

Tvö flugfélög hætta starfsemi sinni í Alaska

15. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:34

Cessna-flugvél frá Yute Air

Tvö flugfélag í Alaska hafa hætt starfsemi sinni og lagt árar í bat í þessum mánuði eftir áratuga langa starfsemi en annað félagið var stofnað á sjötta áratug síðustu aldar.

Flugfélagið Wings of Alaska hætti starfsemi sinni sl. mánudag en félagið sinnti bæði áætlunarflugi og leiguflugi með höfuðstöðvar sínar í Juneau, höfuðstað Alaska-fylkis.

Wings of Alaska var stofnað árið 1982 í þeim tilgangi að bjóða upp á flugsamgöngur í suðausturhluta fylkisins og var félagið eitt af þeim 153 flugfélögum sem eru starfrækt í fylkinu.

Félagið segir að ákvörðunin hafi verið mjög erfið en ástæðan er vegna rekstrarerfiðleika.

„Þetta er erfiður bransi til að vera í og erfiður bransi til að græða peninga“, segir Aldwin Harder, stjórnarmeðlimur félagsins.

Merki flugfélaganna tveggja

Harder segir að félagið hafi verið stofnað til að koma með ferska samkeppni á markaðinn í Alaska en alveg frá því að SeaPort Airlines keypti reksturinn og tók yfir félaginu árið 2008 hefur félagið barist í bökkum.

Yute Air var stofnað fyrir um 60 árum síðan

Þann 5. mars hætti flugfélagið Yute Air starfsemi sinni en það félag var stofnað á sjötta áratugnum.

Yute Air hafði aðsetur í Bethel í Alaska og flaug félagið til 22 áfangastaða í Alaska með flugflota sem samanstóð af fjórtán vélum af gerðinni Cessna 172 og Cessna 207.

Eftir 60 ára starfsemi tilkynnti félagið sl. laugardag að það þakkaði öllum þorpsbúum og þeim farþegum, sem hafa flogið með félaginu í gegnum árinu, fyrir viðskipti sín en félagið gaf ekki upp ástæðuna fyrir því að það hefði ákveðið að hætta starfsemi sinni.

Flugfélagið Ravn Alaska var fljótt að hlaupa undir bagga og tilkynna að félagið myndi reyna að fljúga til þeirra bæja sem Yute Air hafði þjónað til að bjóða upp á áframhaldandi þjónustu en flugsamgöngur eru mikilvægasti fararmáti fyrir íbúa Alaska til að komast á milli staða.

Cessna Caravan vél Wings of Alaska







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga