flugfréttir
Nýja Cyprus Airways komið með flugrekstrarleyfi
- Hefja flugrekstur „mjög fljótlega“
Fyrsta Airbus A319 þota hins nýja Cyprus Airways
Cyprus Airways undirbýr sig fyrir endurkomu sína á flugmarkaðinn en flugfélagið kýpverska hætti starfsemi sinni í janúar árið 2015 eftir 67 ára flugsögu.
Ríkisstjórn Kýpur veitti rússneskum fjárfestum, sem stofnuðu flugfélagið Charlie Airlines í júlí í fyrra, leyfi til þess að nota nafn Cyprus Airways fyrir 276 milljónir króna en ríkisstjórn Kýpur mun samt eiga nafnið og merkið sjálft.
Nýja Cyprus Airways hefur fengið tvær Airbus A319 þotur í flotann sem hafa verið málaðar í nýjum litum en félagið fékk í vikunni úthlutað flugrekstrarleyfi.
Félagið flaug þann 4. mars sl. tilraunaflug frá Larnaca á Kýpur til Heraklion á Grikklandi sem var hluti af vottunarferlinu
og er næsta skref að fá leyfi fyrir farþegaflugi og þá er verið að ljúka við hönnun á leiðarkerfi.
Félagið hefur ekki viljað gefa nákvæmlega upp hvenær Cyprus Airways mun fljúga sitt fyrsta áætunarflug en forsvarsmenn
félagsins segja að það verði „mjög fljótlega“.
Cyprus Airways ætlar sér að bjóða upp á flug frá Kýpur til Bretlands, Rússlands og til annarra áfangastaða í Evrópu en
félagið er 40% í eigu S7 Holdings en kýpversk yfirvöld eiga sextíu prósent í félaginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.