flugfréttir
Vonast til að ný rekstraráætlun muni koma Alitalia til bjargar
- Munu taka 20 þotur úr umferð og bæta við borgum í Ameríku
Flugvélar Alitalia á flugvellinum í Róm
Ítalska flugfélagsins Alitalia ætlar sér að umbreyta rekstri félagsins verulega á næstu tveimur árum og hefur stjórn félagsins samþykkt umfangsmikla viðsnúningsáætlun sem miðar af því að skera niður rekstrarkostnað þess um 1 milljarð evra á næstu tveimur árum.
Þetta jafngildir 116 milljörðum króna lægri rekstarkostnaði en félagið ætlar sér að ná fram
hagnaði fyrir árið 2019 með því að fækka þotum í flotanum um 20 flugvélar, auka sætanýtingu í öðrum
vélum og fljúga til fleiri borga í Bandaríkjunum.
Alitalia hefur í mörg ár verið á barmi gjaldþrots og þrátt fyrir yfirtöku Etihad Airways á 49% hlut
í félaginu þá hefur rekstur þess samt gengið erfiðlega.
Hafa orðið illa fyrir barðinu á easyJet og Ryanair
Evrópsk lágfargjaldafélög á borð við easyJet og Ryanair hafa tekið undir sig 47 prósent
af farþegaflugi til og frá Ítalíu en það hefur bitnað verulega á rekstri Alitalia.
Alitalia ætlar sér að hætta að fljúga til þeirra áfangastaða sem hafa skilað félaginu litlum sem engum
hagnaði en félagið hefur í dag akkurat 100 þotur í flotanum en 20 af þeim, sem stendur til að
taka úr umferð, eru minni farþegaþotur.
Áfangastaðir Alitalia í Norður-Ameríku í dag eru Boston, Miami, New York, Los Angeles, Chicago
og Toronto en félagið sér fram á að markaður sé fyrir enn betri tengingu milli Ítalíu og Ameríku.
Cramer Ball, framkvæmdarstjóri Alitalia, segir að ekki verði hægt að snúa rekstri félagsins á réttan
kjöl nema með viðamiklum breytingum sem mun bitna á starfsfólki með uppsögnum.
Alitalia ætlar meðal annars að tileinka sér þjónustu lágfargjaldafélaga á þeim flugleiðum sem
eru styttri en 4 klukkustundir með því að selja máltíð um borð og gefa farþegum kost á að greiða
sérstaklega fyrir töskur og aðra þjónustu.
Þá stendur einnig til að endurnýja farþegarými í sumum vélum og fjölga sætum um borð
í leiðinni til að koma fleiri farþegum fyrir í þeim.
Stjórn félagsins mun á næstunni eiga fund með ríkisstjórn Ítalíu og verkalýðsfélögum og kynna
ítarlega viðskiptaáætlun sína en félagið segir að mjög raunhæft sé að hægt verði að auka
tekjur félagsins um allt að 30% á næstu tveimur árum með nýju viðsnúningsáætluninni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.