flugfréttir
AirBaltic hefur flogið 500 flugferðir með CS300 vélunum
- Standast bestu væntingar sem félagið gerði til þeirra
CS300 þota airBaltic í flugtaki á flugvellinum í Frankfurt
Lettneska flugfélagið airBaltic hefur náð þeim áfanga að hafa flogið 500 flugferðir í áætlunarflugi með nýju CS300 þotunni frá Bombarider og flogið henni í yfir 1.000 klukkustundir.
Martin Sedlacky, rekstrarstjóri airBaltic, segir að engin þota hafi náð að standa sig eins vel
eftir að hafa verið tekin í notkun í sögu félagsins eins og CS300 þotan og hafi hún staðið sig
betur en þeir þorðu að vona.
„Við erum mjög ánægðir með hana og höfum fengið mjög góð ummæli frá farþegum okkar sem
hafa verið að spyrjast fyrir til hvaða áfangastaða þeir geti flogið með þessari nýju vél“, segir Sedlacky.
AirBaltic hefur fengið tvær CS300 þotur afhentar frá Bombardier og hafa þær verið notaðar
í flugi frá Riga til Munchen, Amsterdam, Róm, Tallinn, Helsinki, Barcelona auk fleiri áfangastaða.
AirBaltic á von á því að fá 18 CSeries CS300 þotur til viðbótar en vélarnar hafa leyst af hólmi
Boeing 737-500 og 737-300 vélarnar sem munu fara úr flotanum fyrir árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.