flugfréttir
Skrúfa losnaði af mótor á Saab-flugvél í 12.000 fetum
Saab 340B vélin eftir að hún lenti með enga skrúfu á hægri mótor
Farþegaflugvél af gerðinni Saab 340B frá ástralska flugfélaginu REX Regional Express lýsti yfir neyðarástandi í dag er skrúfa losnaði ef hægri mótor vélarinnar er hún var í 12.000 feta hæð skammt frá Sydney.
Vélin var á leið frá Albury til Sydney með sextán farþega innanborðs auk þriggja áhafnarmeðlima
þegar atvikið gerðist.
Eftir að flugmennirnir lýstu yfir neyðarástandi PAN þá stöðvuðu flugumferðarstjórar allar
brottfarir um völlinn og létu komuflugvélar fara í biðflug á meðan en vélin lenti um 25 mínútum síðar.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu lítur atvikið mjög alvarlegum augum og hafa þrír
flugslysasérfræðingar verið kallaðir til.
Mikil mildi þykir að engin slasaðist á jörðu niðri þrátt fyrir að skrúfan sé ófundin en
talið er að vélin hafi verið yfir hverfinu Camden þegar skrúfan losnaði.
Við frumskoðun hefur komið í ljós að skrúfuhausinn brotnaði frá skaftinu inni í mótornum en
flugmálayfirvöld hvetja þá sem kunna að finna skrúfuna að snerta hana ekki en hringja þess í stað í yfirvöld og láta vita.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.