flugfréttir
Finnair vill að finnska ríkið minnki sinn hlut í félaginu
Airbus A320 þota Finnair
Finnair vill fara fram á að finnska ríkisstjórnin minnki sinn eignarhlut í flugfélaginu finnska með því að breyta reglugerð sem kveður á um að stjórnvöld í landinu skuli eiga helmingshlut í því.
Klaus Heinemann, stjórnarformaður Finnair, segir að með því
að einkavæða meiri hlut í flugfélaginu sé hægt að tryggja betur
áframhaldandi þróun í rekstri félagsins.
Í sama streng tók Pekka Vauramo, framkvæmdarstjóri Finnair, sem
segir að samkeppnisstaða Finnair gagnvart öðrum evrópskum
flugfélögum myndi styrkjast ef reglum um helmingshlut finna ríkisins yrði breytt.
Þá telur Vauramo að oneworld flugbandalagið hafi gert lítið fyrir Finnair
og telur hann félagið þurfa frekar á að halda að fá sterkan samstarfsaðila
til liðs við sig frá Asíu þar sem félagið hefur að undanförnu verið að styrkja stöðu
sína í flugi til Asíulanda.
„Til lengri tíma litið þá þurfum við samstarfsaðila í Kína ef við ætlum að halda
áfram úrás okkar í Asíu“, segir Vauramo.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.