flugfréttir
Corvetta klessti á Cessnu í kappakstri við Porsche
- Fóru í leyfisleysi á sportbílum inn á flugvallarsvæði í Utah
Frá vettvangi í gær á flugvellinum í Spanish Fork í Utah
Sportbíl af gerðinni Chevrolet Corvette var í gærkvöldi ekið inn í hlið á Cessnu-kennsluvél á flugvellinum í Spanish Fork í Utah-fylki í Bandaríkjunum.
Að sögn lögreglu í Spanish Fork þá kom í ljós að karlmaður, sem hafði aðgang að flugvallarsvæðinu, hafði
í leyfisleysi boðið nokkrum félögum sínum í að koma í kappakstur inn á flugvallarsvæðinu í skjóli nætur.
Bílarnir notuðu eina akstursbrautina („taxiway“) til að fara í spyrnu en á sama
tíma var 17 ára drengur að fara í flugtíma með flugkennara sínum til að fá næturflugsáritun.
Þegar vélin var á leið út á flugbraur varð flugneminn og kennari hans varir við að eytt ljósið á vélinni virkaði
ekki og stöðvuðu þeir vélina á taxiway.
Á sama tíma kom Corvetta og Porsche á fullri ferð og endaði fyrrnefnda bifreiðin á flugvélinni með þeim afleiðingum
að annað hjólastellið brotnaði.
Engann sakaði en lögregla segir að ökumennirnir hafi verið ákærðir fyrir glæfraakstur og mun flugvöllurinn í Spanish Fork hefja rannsókn á atvikinu.
Hægra hjólið brotnaði undan Cessnunni í árekstrinum við Corvettuna
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.