flugfréttir

Fyrstu þjálfunarbúðir Airbus í Asíu munu rísa á Indlandi

- Byrja með tvo Airbus A320 flugherma sem mun fjölga upp í sex herma

18. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 15:11

Frá athöfninni í Aerocity í Delhí í gær

Airbus mun opna fyrstu þjálfunarmiðstöð sína í Asíu á næsta ári en flugvélaframleiðandinn tók fyrstu skóflustunguna í gær að húsnæðinu sem staðsett verður á Indlandi.

Enginn innanlandsflugsmarkaður í heiminum hefur vaxið eins hratt og á Indlandi og hefur innanlandsflugið í landinu aukið umsvif sín um 9,3% á ári sem er helmingi meiri vöxtur en gerist í heiminum þar sem meðaltalið er aukning upp á 4,6 prósent.

Indversk flugfélög hafa pantað fjölda farþegaþotna frá Airbus og telur flugvélaframleiðandinn evrópski að þörf sé á 1.600 nýjum þotum á Indlandi fyrir árið 2035 til að anna eftirspurninni sem kallar á þörf fyrir 24 þúsund nýja flugmenn.

Þjálfunarmiðstöðin, Airbus India Training Centre, sem verður staðsett í Aerocity-flughverfinu í Delhí, verður að öllu leyti í eigu Airbus sem mun sjá um að þjálfa nýja flugmenn fyrir flugiðnaðinn á Indlandi.

Þjálfjunarmiðstöðin verður 7.000 fermetrar á stærð og verður hún tekin í notkun fyrir lok ársins 2018 en hún verður meðal annars útbúin tveimur Airbus A320 flughermum en síðar verður þeim fjölgað upp í fjóra flugherma og jafnvel upp í sex.

Til stendur að hægt verði að þjálfa um 800 flugmenn á ári í Airbus India Training Centre og 200 flugvirkja.

Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus Group, hélt ræðu í gær við athöfnina







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga