flugfréttir
Metfjöldi farþega með bandarískum flugfélögum
- 823 milljónir flugu með flugfélögum vestanhafs í fyrra
Flugvélar American Airlines á bandarískum flugvelli
Aldrei hafa eins margir farþegar flogið með bandarískum flugfélögum og árið 2016.
Í fyrra fluttu bandarísk flugfélög 823 milljónir farþega og er þetta í fyrsta sinn sem farþegafjöldinn vestanhafs
fer yfir 800 milljónir.
Farþegafjöldinn skiptist niður í 719 milljónir farþega í innanlandsflugi en 104 milljónir flugu með
bandarískum flugfélögum til og frá Bandaríkjunum.
Þetta er fjölgun upp á 3,1 prósent frá því árið 2015 þegar 704 milljónir flugu með flugfélögunum í
Bandaríkjunum samkvæmt tölfræði sem samgönguráðuneyti Bandaríkjanna birti sl. fimmtudag.
Sætaframboðið í Bandaríkjunum árið 2016 voru 1.1 milljarðar sæta sem samsvarar því að á hverjum degi
eru flogið með 3.065.753 sæti í farþegaflugi og flugu félögin í fyrra með 2,2 milljónir farþega á dag.
Bandarísk flugfélög felldu niður 1 flug á hverjar 100 flugferðir í innanlandsflugi árið 2016 og þá týndust 2,7 töskur
á hverja 1.000 farþega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.