flugfréttir
Óvíst hvort að Brandenburg-flugvöllur opni árið 2018
- Gæti frestast til vorsins 2019
Upphaflega stóð til að opna Brandenburg-flugvöllinn árið 2010
Óvíst er hvort að nýi Brandenburg-flugvöllurinn muni opna árið 2018 þótt að möguleiki sé á því að hægt verði að taka hann í notkun á næsta ári.
Samkvæmt nýju mati sem gefið var út á dögunum kemur fram að 73% líkur eru á því að flugvöllurinn verði tilbúinn
árið 2018 en stjórn Berlin Brandenburg Airport staðfesti í janúar að flugvöllurinn myndi ekki opna á þessu ári
vegna seinkunar sökum galla í rafkerfi sem tengjast sjálfopnanlegum hurðum í flugstöðinni.
Það er þó bara eitt af þeim fjölmörgu vandamálum sem þarf að laga en þá hefur brunakerfið í flugstöðinni
verið meingallað og það sama má segja um loftræstikerfið sem nær ekki að reykræsta flugstöðina
á tilsettum tíma.
Túristar í hópferð skoða stærsta draugaflugvöll Evrópu, Brandenburg Airport
Þrátt fyrir að möguleiki sé á því að hægt verði að taka flugvöllinn í notkun haustið 2018 þá eru einnig
miklar líkur á að flugvöllurinn verði ekki opnaður fyrr en árið 2019.
Framkvæmdir við Brandenburg-flugvöllinn hófust árið 2006 og stóð til að opna flugvöllinn fyrst árið 2010
en nú lítur allt út fyrir að næstum 10 ára seinkun verði á því að hægt verður að opna hann.
Sumir Berlínarbúar efast hreinlega um að flugvöllurinn verði einhvern tímann tekinn í notkun
en kostnaður við framkvæmdirnar hefur þrefaldast frá upphaflegri fjármálaáætlun sem gerði ráð fyrir 245 milljörðum
króna upp í 800 milljarða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.