flugfréttir
REX kyrrsetur fimm Saab-vélar eftir að skrúfa losnaði af mótor
Saab 340 flugvél frá REX (Regional Express)
Ástralska flugfélagið REX (Regional Express) hefur kyrrsett fimm Saab 340B flugvélar í flota sínum í kjölfar atviks sem átti sér stað fyrir helgi þar sem skrúfa losnaði af mótor á einni slíkri vél í 12.000 fetum er vélin var á leið til Sydney.
Regional Express hefur 52 flugvélar í flota sínum af gerðinni Saab 340 en félagið tilkynnti í dag
að fimm flugvélar séu með gírkassa og drifskaft frá sama framleiðanda og þeim sem framleiddi
þá íhluti sem voru í vélinni sem missti skrúfuna.
Öryggisnefnd samgöngumála í Ástralíu rannsakar nú atvikið á flugvélinni sem náði að lenda heil
á höldnu eftir að skrúfan lostnaði af en skrúfan sjálf hefur enn ekki fundist.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.