flugfréttir
Rússneska MC-21 þotan mun fljúga jómfrúarflugið í apríl
Rússneska MC-21 þotan í lokasamsetningu í verksmiðjum Irkut í borginni Zhukovsky
Rússar undirbúa núna jómfrúarflugið fyrir fyrstu Irkut MC-21 þotuna en vélin er framleidd af United Aircraft Corporation (UAC).
Stefnt er að því að fyrsta MC-21 tilraunaþotan muni fljúga sitt fyrsta flug í apríl en
Dmitry Rogozin, forsetisráðherra Rússlands, tilkynnti í desember að jómfrúarflugið
myndi eiga sér stað í vor.
„Rússneska ríkisstjórnin fær að vita stöðu mála á hverjum degi“, segir Dmitry
en vélinni er ætlað að leysa af hólmi Tupolev Tu-154 þotuna.
Fyrsta prótótýpan fór í samsetningu í apríl í fyrra og var vélin frumsýnd þann 8. júní
sl. sumar.
Irkut MC-21 þotan mun koma í tveimur útgáfum en MC-21-200 mun taka allt að
165 farþega á meðan MC-21-300 mun geta tekið allt að 211 farþega.
MC-21 þotan, sem kemur með einum gangi, mun hafa flugþol upp á allt að 6.400 kílómetra
og flokkast hún í sama stærðarflokk og Boeing 737 MAX og Airbus A320neo og munu þær
vélar veita MC-21 þotunni samkeppni á rússneska markaðnum.
Nú þegar hafa tíu flugfélög og flugvélaleigur pantað samtals 192 eintök af þotunni sem skiptist
niður í 177 þotur af gerðinni MC-21-300 en aðeins hafa verið pöntuð fimmtán eintök af
MC-21-200.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.