flugfréttir

Virgin America mun heyra sögunni til árið 2019

- Reksturinn verður sameinaður Alaska Airlines

23. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:13

Virgin America hefur haft 63 Airbus-þotur í flota sínum að undanförnu

Virgin America mun heyra sögunni til eftir tvö ár en Alaska Airlines hefur tilkynnt að félagið ætli að sameina rekstur Virgin America og verður nafn þess og merki látið falla niður.

Alaska Airlines keypti allan hlut í Virgin America í apríl í fyrra og yfirtók rekstur þess og sameinaðist rekstur félaganna tveggja en Alaska Airlines tilkynnti fyrst að rekstur Virgin America myndi sennilega haldast óbreyttur og yrðu félögin rekin í sitthvoru lagi.

Alaska Airlines tilkynnti hinsvegar í gær að félagið myndi hætta með nafnið og merki Virgin America og mun það hverfa af sjónarsviðinu árið 2019.

„Þótt að Virgin America sé dáð af fjölmörgum farþegum út um öll Bandaríkin þá er það ákvörðun okkar að til að ná áfram árangri í rekstri okkar á vesturströndinni að þá sé best að gera það undir einu merki“, segir Sangita Woerner, markaðsstjóri Alaska Airlines.

Virgin America hefur m.a. verið verðlaunað fyrir besta farþegarýmið og bestu afþreyingarkerfið um borð

Þá verða vélar Virgin America endurinnréttaðar í samræmi við vélar Alaska Airlines og verða breytingar gerðar á þjónustu, lýsingu um borð í vélunum, þjónustu um borð og afþreyingu fyrir farþega.

Virgin America var stofnað árið 2004 af auðkýfingnum Richard Branson og átti félagið upphaflega að heita „Virgin USA“ en nafni þess var breytt skömmu síðar.

Virgin America var stofnað árið 2004

Félagið flaug sitt fyrsta áætlunarflug árið 2007 frá Los Angeles til San Francisco auk þess sem félagið flaug sama dag frá New York til San Francisco.

Virgin America hefur verið mjög vel liðið af farþegum vestanhafs og hefur það hlotið fjölmörg verðlaun í flugiðnaðinum m.a. fyrir besta afþreyingarkerfið um borð, bestu hönnun í markaðssetningu, besta lágfargjaldafélagið í Ameríku, besta þjónusta um borð, bestu lýsingu í farþegarými auk þess sem það var valið besta flugfélag Bandaríkjanna 4 ár í röð frá 2013 til ársins 2016 af Airline Quality Rating.

Richard Branson var duglegur að bregða á leið með félaginu og starfsfólki þess







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga