flugfréttir
Boeing 787-10 mun fljúga jómfrúarflugið þann 31. mars
Fyrsta Boeing 787-10 þotan fyrir utan verksmiðjur Boeing í Suður-Karólínu þann 17. febrúar
Boeing hefur ákveðið dagsetningu fyrir jómfrúarflug Boeing 787-10 þotunnar sem er lengsta útgáfan af Dreamliner-vélinni.
Í tilkynningu frá Boeing kemur fram að jómfrúarflugið muni eiga sér stað þann 31. mars næstkomandi en það
verður þó háð veðri auk öðrum atriðum sem gætu haft áhrif á dagsetninguna.
Boeing frumsýndi Boeing 787-10 þotuna við hátíðlega athöfn er henni var ýtt út úr samsetningarsal í Suður-Karólínu
þann 17. febrúar að viðstöddu fjölmenni auk forseta Bandaríkjanna.
Fyrsta Boeing 787-10 tilraunavélin kemur með Trent 1000 hreyflum frá Rolls-Royce en viðskiptavinum
stendur einnig til boða að panta vélina með GEnx-hreyflum frá General Electric.
Boeing hefur fengið pantanir frá níu viðskiptavinum í 149 eintök af Boeing 787-10 þotunni
en Singapore Airlines mun fá fyrstu vélina afhenta árið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.