flugfréttir
Emirates mun hætta með júmbó-þotur í fraktflugi
Boeing 747-400F fraktþota Emirates SkyCargo
Emirates SkyCargo ætlar að hætta með júmbó-fraktþoturnar en félagið hefur að undanförnu haft tvær Boeing 747-400F fraktvélar í flota sínum.
Júmbó-fraktþoturnar hafa flogið undir merkinu Emirates SkyCargo en félagið hefur einnig
þrettán Boeing 777F þotur sem leigðar eru frá Dubai Aerospace Enterprise.
Júmbó-frakvélarnar tvær hefur Emirates leigt frá belgísku flugvélaleigunni ASL Airlines Belgium
en þeim verður skilað til baka í júní í sumar.
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir ástæðuna vera vegnar dræmrar eftirspurnar í flugfrakt sem hefur
einnig farið dvínandi hjá öðrum fraktflugfélögum.
Emirates pantaði árið 2006 tíu júmbó-fraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en árið 2011 hætti félagið við þá pöntun
og breytti þeim í Boeing 777F.
Árið síðar, árið 2012, hætti Emirates SkyCargo við hinar Boeing 747-8F þoturnar fimm og var ákveðið að einblína
frekar á fraktflug með Boeing 777F.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.