flugfréttir

Bombardier lýkur við prófanir með CS100 á London City

- CSeries var hönnuð fyrir bratt aðflug á London City flugvellinum

24. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:24

CS100 tilraunaþotan frá Bombardier á London City flugvellinum í gær

Bombardier hefur lokið við flugprófanir á CSeries-þotunum á London City flugvellinum og eiga vélarnar von á því að fá vottun fyrir flugi um flugvöllinn á næstu sex til átta vikum.

Þær flugvélartegundir sem fljúga um London City flugvöllinn þurfa sérstaka vottun þar sem aðflugið að flugvellinum er tiltölulega bratt samanborið við aðflug að öðrum flugvöllum.

Bombardier hóf flugprófanir með bratt aðflug fyrir mánuði síðan á öðrum flugvöllum og var CS100 tilraunavél Bombardier látin taka aðflug með 7.5° halla sem er tveimur gráðum meiri halli en aðflugið að London City sem er 5.5 gráður.

CS100 tilraunavélinni var svo flogið til London City flugvallarins í fyrsta sinn þann 22. mars og voru gerð nokkur aðflug að vellinum og fjögur aðflug daginn eftir.

Þeir flugmenn, sem munu fljúga CSeries-þotunum til London City, munu þurfa að gangast undir sérstaka þjálfun áður en þeir fljúga til LCY.

Myndband:

Að sögn Rober Devar, yfirmanns yfir CSeries-verkefninu þá hannaði Bomardier CSeries-þoturnar sérstaklega fyrir bratt aðflug að London City-flugvellinum.

„Þetta er stærsta þotan á markaðnum sem getur flogið með eins marga farþega og langa vegalengd frá London City flugvellinum“, segir Dewar en einkaþotuútgáfan af CS100 getur flogið frá London til Norður-Ameríku en Odyssey Airlines og PrivatAir hafa bæði pantað einkaþotuútgáfu af vélinni.

Tíu flugfélög fljúga í dag um London City flugvallarins til 35 áfangastaða í Evrópu en þau eru Aurigny Air Services, Alitalia, British Airways, CityJet, Flybe, KLM, Lufthansa, Luxair, Skywork Airlines og SWISS.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga