flugfréttir

Pilatus PC-12 vinsælust í heimi í sínum flokki árið 2016

- Munu afhenda 1.500 eintakið í ár af Pilatus PC-12

26. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 19:46

Pilatus PC-12 flugvélin

Engin einkaflugvél í viðskiptafluginu með skrúfumótor seldist í eins mörgum eintökum og PC-12 flugvélin frá Pilatus Aircraft flugvélaframleiðandanum svissneska.

Pilatus PC-12 er vinsælasta skrúfuflugvélin í flokki „business aircraft“ í heimi en í fyrra seldust 91 eintak af vélinni en framleiðandinn gerir ráð fyrir að afhenda eintak númer 1.500 af vélinni í sumar.

Pilatus PC-12 flaug sitt fyrsta flug árið 1991 en kom á markaðinn árið 1994 en vélin var fyrst kynnt til sögunnar á einkaþotusýningunni NBAA árið 1989.

Nýjasta kynslóðin af vélinni, Pilatus PC-12NG, nær hraðanum 285 kts sem samsvarar 528 km/klst hraða en farþegarýmið hefur verið gert sérstaklega hljóðeinangrað og þá hafa verið gerðar endurbætur á skrokki vélarinnar til að minnka loftmótsstöðu sem eykur flugþol hennar og farflugshraða.

Pilatus PC-12 á Courchevel-flugvellinum í svissnesku ölpunum

„Allt Pilatus-teymið hefur unnið hörðum höndum að því að ná árangri í að gera vélina enn betri á sama tíma og viðskiptaumhverfið er krefjandi“, segir Ignaz Gretener, varaformaður Pilatus Aircraft.

Eigendur Pilatus PC-12 vélanna virðast vera gjarnir á að halda í sínar vélar en aðeins eru um 3.7% allra PC-12 flugvélanna til sölu sem endurspeglar eiginleika vélanna í hópi flugvéla af þessari tegund og því ekki margir sem vilja skipta þeim út.

10 ára gömul Pilatus PC-12 einkaflugvél heldur einnig gangverði sínu mjög vel en 2007 árgerð af vélinni selst á aðeins 81% af verði nýrrar vélar beint frá framleiðanda og rýrnar hún því aðeins um 2,2 prósent í verði á ári sem er langt undir verðrýrnun á öðrum sambærilegum flugvélum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga