flugfréttir
Of mikil notkun á ljósum fyrir sætisbelti getur skapað hættu
- Farþegar taka minna mark á þeim ef þau eru stanslaus í gangi
Sætisbeltaljós um borð í farþegaþotu
Flugöryggissérfræðingur einn í Kanada telur það geta skapað vissa hættu gagnvart öryggi farþega ef flugmenn hafa sætisbeltaljósin viðstöðulaust í gangi mest allt flugið.
Greg Marshall, sem starfar sem öryggissérfræðingur í flugmálum, segir að farþegar eigi það til að hætta að
taka mark á þeim og fari að ganga um flugvélina og sé því ekki sniðugt að hafa þau í gangi þegar skyndilega
kemur upp sú staða að ástæða er að kveikja á ljósunum vegna ókyrrðar.
Marshall vill meina að betra sé að hafa þau slökkt á meðan „gott er í lofti“ svo ljósin komi þeim skilaboðum
á framfæri þegar kemur að því að ástæða er til þess að setjast og spenna beltin.
Samgönguöryggisnefnd Kanada vitnar í atvik sem átti sér stað um borð í farþegaþotu frá Air Canada
í desember 2015 sem var á leið frá Shanghai til Toronto þegar nokkrir slösuðust í ókyrrð sem reið yfir
en fram að því höfðu sætisbeltaljósin verið í gangi mest allt flugið.
Margir farþegar taka ekki eftir því ef sætisbeltaljósin eru í gangi í
langan tíma
Fram kemur að flugiðnaðurinn sé nú þegar meðvitaður um of mikla notkun á sætisbeltaljósum en að öllu
jöfnu er farþegum gert að hafa beltin spennt á meðan flugvél er á akstri á flugvelli, í flugtaki og í lendingu en einnig
er þeim ráðlagt að hafa beltin spennt á meðan þeir sitja í sætum sínum.
Flugmálayfirvöld í Kanada hafa hvatt flugfélög til að nota aðeins sætisbeltaljósin þegar þess er þörf en Marshall
segir að reglugerð varðandi sætisbelti og sætisbeltaljós séu mjög misjöfn eftir flugfélögum.
„Sum flugfélög hafa sætisbeltaljósin alltaf á og eru ekki mikið að spá í því hvort farþegar séu að rápa um
vélina á meðan önnur flugfélög eru frekar ströng varðandi þessi atriði“, segir Marshall.
Þá segir Marshall að þessi atriði séu einnig misjöfn þar sem það fer eftir hverri áhöfn fyrir sig en að yfirleitt
er það flugstjórinn sem tekur ákvörðunina um hvenær hann setur “seat belts“ ljósin á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.