flugfréttir
Nýjar höfuðstöðvar easyJet í Evrópu í kjölfar Brexit
Airbus A320 þota easyJet á Luton-flugvellinum
Breska lágfargjaldafélagið easyJet mun á næstu dögum tilkynna um sína fyrstu höfuðstöðvar utan Bretlands en félagið hefur sótt um evrópsk flugrekstrarleyfi í kjölfar þess að Bretar kusu að draga sig úr Evrópusamstarfinu í fyrra.
Samkvæmt heimildum mun félagið því stofna nýja aðalbækistöð á meginlandi Evrópu og mun flugrekstrarleyfið
gefa easyJet leyfi til að fljúga innan allra hinna 27 aðildarlanda Evrópusambandsins.
Austurríki, Malta og Portúgal eru lönd sem koma sterklega til greina fyrir hina nýju höfuðstöðvar en ekki
er talið að breytingin muni hafa nein áhrif á starfsemina í höfuðstöðvunum á Luton-flugvellinum.
Áhrif Brexit hefur orðið til þess að sum bresk flugfélög hafa athugað þann kost að auka hlutdeild þeirra
hluthafa sem búsettir eru í aðildarlöndum Evrópusambandsins.
Samtök breskra flugvallarekenda segja að óljóst sé hver áhrifin verða þegar Bretar munu formlega hætta
í Evrópusamstarfinu ef engar reglugerðir séu til staðar um framhaldið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.