flugfréttir
40 ár í dag frá mannskæðasta flugslysi sögunnar á Tenerife
- 583 létust er tvær júmbó-þotur rákust saman í þoku
40 ár eru í dag liðin frá flugslysinu á Tenerife sem er enn þann dag í dag mannskæðasta flugslys sögunnar
40 ár eru í dag frá því að mannskæðasta flugslys sögunnar átti sér stað á Los Rodeos flugvellinum á Tenerife (Tenerife Norte) er tvær júmbó-þotur frá Pan Am og KLM Royal Dutch Airlines skullu saman með þeim afleiðingum að 583 létu lífið.
Í kjölfar sprengingu á flugvellinum á Gran Canaria þurfti fjöldi flugvéla að lenda á Tenerife
Norte flugvellinum og þar á meðal tvær júmbó-þotur, önnur frá KLM Royal Dutch Airlines af gerðinni Boeing 747-200
og hin frá Pan Am, af gerðinni Boeing 747-100.
Báðar vélarnar voru á leið til Gran Canaria en KLM þotan fór í loftið frá Amsterdam á meðan Pan Am þotan
fór í loftið frá Los Angeles með viðkomu í New York.
Þegar vélarnar voru að nálgast Kanaríeyjar höfðu flugvallaryfirvöldum á eyjunum borist tvær tilkynningar símleiðis
um að sprengju hafði verið komið fyrir í flugstöðinni í Las Palmas og var því ákveðið að loka vellinum og beina
öllu flugi á aðra flugvelli á eyjunum en flestum vélunum var beint til Tenerife sem þá hafði aðeins einn flugvöll.
„Rijin“, Boeing 747-100 þota KLM sem eyðilagðist í slysinu
Flugvöllurinn á Tenerife Norte er ekki stór og var hann fljótur að fyllast af farþegaþotum en völlurinn hefur aðeins
eina flugbraut og eina aksturbraut að báðum endunum.
Tenerife fylltist af flugvélum á meðan þoka nálgaðist af hafinu
Þegar flughlaðið á Tenerife Norte var orðið þéttsetið kom mikil þoka af sjónum yfir eyjuna en á sama
tíma var ákveðið að opna flugvöllinn aftur á Gran Canaria og gátu vélarnar á Tenerife því farið að hugsa sig
til hreyfings.
Júmbó-þotan frá Pan Am var tilbúin til að hefja sig á loft en júmbó-þotan frá KLM og eldsneytisbíll lokaði aksturbrautinni að flugbrautinni vegna plássleysis en hollenski flugstjórinn, Veldhuyzen van Zenten, vildi fylla vélina á Tenerife
til að spara tíma í stað þess að fylla hana á Gran Canaria fyrir flugið til baka til Amsterdam.
Ein kona, sem var spænskur leiðsögumaður, ákvað að fara ekki aftur um borð í júmbó-þotu KLM þar sem hún
var búsett á Tenerife og sá hún enga ástæðu til þess að fljúga til Gran Canaria bara í þeim tilgangi til að fljúga
strax aftur til baka - Sú kona er sú eina sem átti bókað flug með KLM-vélinni frá Amsterdam sem lifði slysið af þar sem hún fór aldrei um borð.
KLM vélin fékk skömmu síðar leyfi til að hefja akstur í átt að flugbrautinni og taka 180 gráðu beyju á brautarendanum og áttu flugmennirnir að láta vita þegar þeir voru komnir að endanum en á þessum tímapunkti var komin svo mikil þoka að ekki sást á milli flugvéla og eina sem flugumferðarstjórarnir sáu út um gluggann á flugturninum var hvít þokan.
Staða vélanna á flugvellinum þegar slysið gerðist
Skömmu síðar fengu flugmennirnir á júmbó-þotu Pan Am leyfi til að aka sömu leið og júmbó-þota KLM, niður eftir
flugbrautinni en þeim var gert að fara út af henni inn á „taxiway“ á þriðja „exit“ sem staðsett er fyrir miðri brautinni
en akstursbrautin tengist aftur inn á brautarendann þar sem KLM vélin var að snúa við.
Flugmenn Pan Am þotunnar í vanda við að yfirgefa flugbrautina
Flugmennirnir á Pan Am vélinni rugluðust í rýminu í þokunni er þeir ætluðu að fara út af á þriðju útafakstursleiðin þar sem engar merkingar voru á flugbrautinni.
Flugmennirnir töldu þrjú „exit“ en talning þeirra var röng og misstu þeir af beygjunni en næsti útafakstur var ekki aflíðandi frá stöðu þeirra á
flugbrautinni og var ógjörningur fyrir júmbó-þotu að taka næsta útafakstur sem var aflíðandi úr hinni áttinni.
Á þessum tímapunkti var KLM þotan að taka 180 gráðu beygjuna á hinum brautarendanum og var eitthvað farið
að rofa til og sáu flugumferðarstjórarnir KLM-þotuna en skyggnið var þó óstöðugt þar sem nokkur ský voru
að ganga yfir flugvöllinn af hafinu í 600 metra hæð yfir sjávarmáli.
Tenerife Norte flugvöllurinn er hinsvegar í 633 metra hæð
yfir sjó og sáu flugumferðarstjórarnir því ekki flugvélarnar á flugvellinum allan tímann á meðan ágætt
skyggni kom inn á milli.
Veldhuyzen van Zante, flugstjórinn á KLM þotunni lést í
slysinu ásamt öllum öðrum um borð
Önnur þokuslæða nálgaðist flugvöllinn á 6 m/s hraða og var í 900 metra fjarlægð frá flugvellinum en á þeim
tímapunkti ætlaði Zanten flugstjórinn á KLM þotunni að auka afl hreyflanna þegar aðstoðarflugmaður hans, Klaas Meurs,
benti honum á að það var ekki komin flugtaksheimild frá turninum.
Zanten sagðist vita það vel og bað hann um að spyrja turninn um leyfi en Zanten var orðin óþolinmóður og vildi
komast sem fyrst af Tenerife til Gran Canaria þar sem mikil töf hafði orðið á flugáætluninni.
Misskildu samhengið með orðinu „take off“
Meurs tilkynnti turninum að þeir væru tilbúnir til flugtaks. Flugumferðarstjórarnir svöruðu og gerðu þeim grein
fyrir brottfararleiðinni og að þeir skildu eftir flugtak fara upp í 9.000 fet í átt að Las Palmas VOR
en orðasamskiptin innihéldu orðið „take off“.
Meurs las til baka fyrirmælin en misskildi orðið „take off“ og á sama tíma tekur Zanten flugstjóri
bremsurnar af og segir „We´re going“.
Flugturninn segir þeim því næst að vera viðbúnir fyrir flugtaksheimild sem ætti að koma fljótlega en á því
augnabliki kemur flugstjórinn á Pan Am þotunni inn í samtalið og segir að þeir séu enn á flugbrautinni og séu ekki búnir
að ná að yfirgefa brautina en flugmennirnir á KLM þotunni heyrðu ekki þessi skilaboð þar sem truflun
kom í sambandið á tíðninni.
Flugturninn biður flugmennina á Pan Am þotunni að láta sig vita þegar þeir væru komnir af brautinni en þau
skilaboð voru þau síðustu sem komu til vélanna tveggja. Flugstjórinn, Victor Grubbs, á Pan Am vélinni segir við aðstoðar flugmanninn, Robert Bragg, „Let´s get the f**k out of here“.
Pan AM þotan var enn á brautinni þegar KLM þotan fór í flugtak
Siglingafræðingurinn á KLM þotunni „second officer“ spyr hina flugmennina tvo, sem eru með honum í stjórnklefanum, hvort að Pan Am vélin sé ekki örugglega farin af brautinni en á sama tíma sjá flugmennirnir á Pam Am þotunni lendingarljósin á KLM vélinni nálgast í gegnum þokuna á miklum hraða.
„Þarna er hann - sjáið þetta - „Goddam that son-of-a-bi**h is coming straight at us”, segir flugstjórinn Grubbs á Pam Am þotunni. - „Get
off! - Get off! - Get off”, öskrar Braggs.
Ekkert skyggni var á þessum tímapunkti milli vélanna tveggja og ekki sást til þeirra á brautinni frá flugturninum
og á þessum tíma var engin jarðradar á flugvellinum.
KLM þotan er við það að hafa sig á loft og segir Meurs „V1“ en á sama tíma reyna flugmennirnir á Pan Am þotunni
að setja fullt afl á hreyflana og stefna út á graslendið milli akstursbrautarinnar og flugbrautarinnar til að komast
hjá árekstri.
Þegar Zanten og Meurs sjá Pan Am þotuna er það orðið of seint þar sem þeir voru komnir á það mikinn hraða
að vélin var byrjuð að lyftast frá brautinni. Zenten reynir að lyfta vélinni á loft með því að taka stýrið alveg að sér en við það fer stélhlutinn ofan í jörðina og skrapar brautina.
Tölvugerð mynd af því er KLM vélin fór í gegnum Pam Am þotuna
Nefhjólið slapp yfir Pan Am þotuna en hreyflarnir og búkurinn fyrir aftan vængina á KLM þotunni fer beint í gegnum
Pan Am vélina á skellur hún á vélinni á 260 kílómetra hraða (140 kts).
Báðir hreyflarnir á hægri vængnum fara í gegnum efra tilfarið á Pan Am vélinni sem rifnar af á meðan stélið sleppur einnig við áreksturinn.
Enginn komst lífs af í KLM þotunni - 61 lifi slysið af í Pan Am þotunni
Gríðarleg sprenging varð er KLM vélin steyptist ofan í brautina þar sem hún var full af eldsneyti eftir að Zanten
fór fram á að fylla vélina sem tók 35 mínútur. Svo mikill eldur kom upp að ekki var búið var að ráða niðurlögum hans fyrr en 7 tímum síðar.
Ljósmynd af slysstað árið 1977
248 manns voru í KLM þotunni, 234 farþegar og fjórtán manna áhöfn, og létust allir um borð í vélinni.
Í júmbó-þotu Pan Am voru 396 manns, 380 farþegar og sextán manna áhöfn, og létust 334 um borð í þeirri vél og
komust 61 lífs af, þar á meðal sjö úr áhöfninni.
Svo mikil þoka var á flugvellinum að slökkviliðið áttaði sig ekki á því að tvær vélar höfðu skollið saman og höfðu þeir því aðeins verið að störfum við flak KLM þotunnar fyrstu mínúturnar áður en þeir gerðu sér grein fyrir að skammt undan
var flak af júmbó-þotu frá Pan Am.
Flugvellinum var lokað í kjölfarið í tvo sólarhringa og lokuðust því allar flugsamgöngur til Tenerife þar sem völlurinn
var eini flugvöllurinn á eyjunni en Reina Sofia flugvöllurinn opnaði ári síðar eftir slysið, árið 1978.
Fyrstu flugslysasérfræðingarnir komu til Tenerife daginn eftir á báti eftir 3 klukkustunda siglingu frá Las Palmas
en Lockheed C-130 Hercules flugvél frá bandaríska flughernum var fyrsta flugvélin til að lenda á vellinum tveimur
dögum síðar.
Flak KLM vélarinnar eftir slysið
Hreinsunarstarf tók hátt í viku en þann 3. apríl var flugvöllurinn opnaður alveg að nýju fyrir öllu farþegaflugi og stórum
þotum líka en fyrstu daganna máttu einungis litlar flugvélar lenda á brautinni sem var að hluta til lokuð þar sem flök vélanna voru enn á brautinni.
Rannsókn slyssins
Um 70 sérfræðingar komu að rannsókn flugslyssins og þar á meðal flugslysarannsakendur frá Bandaríkjunum og
frá Hollandi en í ljós kom að rangtúlkun, misskilningur og slæm ákvörðunartaka var megin orsök slyssins.
Hljóðriti úr júmbó-þotu KLM gaf í skyn að Zanten flugstjóri var sannfærður um að þeir höfðu fengið leyfi til flugtaks á meðan flugumferðarstjórarnir voru sannfærðir um að vélin væri að bíða eftir flugtaksheimild.
Meginorsök slyssins var sú að Zanten hóf flugtak án heimildar og fundu sérfræðingar út að flugstjórinn hollenski
var mikið í mun að komast sem fyrst í loftið til að ná að fylgja reglugerð KLM um hámarksvinnutíma.
Forsíða Morgunblaðsins þann 29. mars árið 1977
Önnur orsök slyssins var þokan sem hafði mikil áhrif á aðstæður en betra skyggni hefði mögulega komið
í veg fyrir að þoturnar hefði rekist á hvora aðra en hvorki flugmennirnir né flugumferðarstjórarnir gátu séð hvorn annan.
Breytingar á reglugerðum í fluginu í kjölfar slyssins
Umfangsmiklar breytingar voru gerðar í flugheiminum í kjölfar flugslyssins á Tenerife en til að mynda var tekin í notkun
stöðluð orðanotkun í samskiptum milli flugumferðarstjóra og flugvéla til að forðast misskilning og áhersla aukin
á notkun á ensku í samskiptum milli flugumferðarstjóra og flugmanna.
Áhersla var lögð á að samskipti myndu ekki enda á orðum eins og „OK“ eða „roger“ og var í kjölfar slyssins farið
fram á að flugmenn myndu lesa til baka öll fyrirmæli frá flugumferðarstjórum til að fyrirbyggja misskilning og með
þeim hætti er hægt að sýna fram á fullan skilning á fyrirmælum sem í dag þekkist betur sem „read back correct“.
Þá var farið fram á að aðeins mætti nota orðið „take off“ þegar verið er að gefa flugtaksheimild eða þegar verið
er að afturkalla flugtaksheimild („cancel take-off clearance“) en þess í stað var farið fram á að nota frekar
„departure“ til að forðast misskilning.
Frá slysstað
Þá var einnig farið fram á að nota skuli „hold position“ þegar verið er að gefa fyrirmæli til flugmanna á flugvél sem hefur stillt sér upp á brautinni fyrir flugtak.
„Ég trúði því ekki að maðurinn væri að fara í flugtak. Ég lokaði augunum og beygði mig“, sagði Robert Bragg, flugmaður
sem flaug Pan Am þotunni í viðtali á BBC árið 2016.
Bragg lést þann 9. febrúar, í seinasta mánuði, 79 ára að aldri, á heimili sínu í Harrisonburg í Virginíu í Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.