flugfréttir
SAS selur tvö pláss á Heathrow
Boeing 737-600 þota SAS á Heathrow-flugvellinum í London
SAS (Scandinavian Airlines) hefur selt tvö afgreiðslupláss á Heathrow-flugvellinum í London til aðila sem ekki kemur fram hver er.
Scandinavian Airlines seldi plássin fyrir 8,2 milljarða króna hvert en SAS hefur 6. mestu umsvifin á Heathrow er kemur
að plássum en félagið flýgur 19 flugferðir á dag til og frá Norðurlöndunum.
SAS mun fá að nota plássin áfram í þrjú ár en eftir það mun flugfélagið fljúga sautján flugferðir til og frá London
í stað nítján.
Að undanförnu hefur SAS verið að minnka umsvif sín til London en árið 2015 hafði félagið 21 pláss
á Heathrow en félagið seldi þá eitt pláss fyrir 8 milljarða króna til ónefnds flugfélags í febrúar árið 2015
og mánuði síðar seldi félagið annað pláss til Turkish Airlines.
SAS flýgur í dag til og frá London til Oslóar, Stokkhólms, Stavanger og til Kaupmannahafnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.