flugfréttir
Boeing 737 rann út af braut eftir harða lendingu í Perú
- Allir sluppu frá borði heilir á húfi
Atvikið átti sér stað klukkan 21:40 í kvöld að íslenskum tíma
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-300 varð alelda eftir að hún rann út af braut eftir að hafa lent mjög harkalega á flugvellinum í borginni Jauja í Perú á tíunda tímanum í kvöld.
Vélin, sem er frá Peruvian Airlines, var að koma frá höfuðborginni Lima með 138 farþega innanborðs þegar atvikið
átti sér stað en samkvæmt heimildum var lendingin mjög harkaleg og skall vélin tvisvar í brautina að sögn farþega.
Öll hjól vélarinnar brotnuðu og rann vélin á maganum út af brautinni og var eldur komin upp áður en hún staðnæmdist á graslendi á flugvallarsvæðinu.
Áhöfnin náði að rýma vélina á augabragði og sluppu allir farþegar frá borði án teljandi meiðsla og kemur fram að
enginn hafi slasast en fjölmiðlar í Perú segja að þrír hafi hlotið lítilháttar meiðsl.
Vélin var að koma frá Lima þegar hún lenti mjög harkalega og rann út af brautinni með brotin hjólastell
Slökkvilið mætti fljótt á staðinn og náði að ráða niðurlögum eldsins á skömum tíma en eldur logaði í eldsneytispollum
sem láku út í grasið í kringum vélina.
Francisco Carle flugvöllurinn í Jauju er í 11.034 feta hæð yfir sjó hefur hefur völlurinn eina braut sem er 2.8 kílómetrar
á lengd sem samsvarar 9.220 fetum.
Veður á vettvangi frekar milt, logn og ágætis skyggni. Orsök brotlendingarinnar er ókunn og hafa flugmálayfirvöld
í Perú sent rannsóknarteymi á staðinn.
Færslur af Twitter:
#BREAKING Peruvian #Airlines #Boeing 737-300, #Lima to Jauja #Peru veers off runway, bursts into flames after landing. #travel pic.twitter.com/nda6iqnYwa
— AOC (@AOC_Security) 28. marts 2017
A Peruvian Airlines Boeing 737 has been involved in an accident at Francisco Carle Airport in Peru. pic.twitter.com/z4QT5QjUYc
— Brendan Grainger (@S118869) 28. marts 2017
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.