flugfréttir

Fleiri lágfargjaldafélög um Heathrow með þriðju brautinni

29. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:52

Flybe flaug í gær sitt fyrsta flug um Heathrow-flugvöllinn

Stjórn Heathrow-flugvallarins gerir ráð fyrir að geta boðið fleiri lágfargjaldafélög velkomin þegar þriðja flugbrautin verður tilbúin og komin í notkun.

Derek Provan, yfirmaður yfir þróunar- og framkvæmdarsviði Heathrow-flugvallarins, segist gera ráð fyrir því að lágfargjaldafélögum verði boðið að fljúga um völlinn en þrátt fyrir það er ekki gert ráð fyrir að reist verði sérstök flugstöð fyrir þau félög.

Flybe flaug sitt fyrsta flug um Heathrow-flugvöll í gær með flugi til Aberdeen og Edinborgar en Flybe er fjórða lágfargjaldafélagið sem byrjar að fljúga um Heathrow á eftir Eurowings, Iberia Express og Vueling.

Heathrow-flugvöllurinn hefur uppi áform um að taka í notkun sjöttu flugstöðina, Terminal 6, en að öllum líkundum yrði það almenn flugstöð og myndi ekki þjóna lágfargjaldafélögunum eingöngu.

EasyJet hefur einnig lýst yfir áhuga á því að hefja flug um Heathrow þegar þriðja flugbrautin verður tilbúin en stefnt er að því að taka hana í notkun fyrir árið 2025.

Derek Provan segir að mjög áhugavert verði að fylgjast með því hvernig lágfargjaldafélögunum eigi eftir að vegna í flugvallarumhverfi sem að miklu leyti býður upp á tengiflug en ekki er komin nægilega mikil reynsla á þá blöndu á Heathrow.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga