flugfréttir

EASA mun nota nýja aðferð við gerð áhættumats í flugöryggi

- „Tíðni flugslysa á fjölda flugferða“ ekki nákvæm aðferð til að styðjast við

29. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:24

Höfuðstöðvar flugöryggisstofnunnar Evrópu (EASA)

Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) segir að á þessu ári verði kynnt nýtt kerfi við að meta áhættu í öryggismálum í flugi en hingað til hefur flugslysatíðni oftast verið reiknuð út frá fjölda slysa og atvika á ákveðinn fjölda flugferða.

EASA segir að yfirleitt hafi öryggi í flugi verið reiknað út með því að deila fjölda flugferða með flugslysatíðni og fjölda alvarlegra atvika en stofnunin segir að sú aðferð sé alls ekki góð við mat á áhættu á flugslysum.

Í bráðabirðarúttekt á öryggismálum í fluginu fyrir árið 2016 kemur fram að slysatíðnin í fyrra hafi lækkað töluvert á 5 árum frá árinu 2012 niður í þrjú flugslys á hverja 1.000.000 flugferðir.

18 flugslys áttu sér stað í farþega- og fraktfluginu árið 2016 í Evrópu en fjöldi alvarlegra atvika var þó yfir meðaltali þar sem 100 atvik áttu sér stað í fyrra en samkvæmt tölfræði EASA er um að ræða atvik vegna tæknilegra bilana í stjórnkefum, of lítill aðskilnaður milli tveggja flugvéla og atvik þar sem flugvélar fóru út af flugbraut.

Evrópusambandið hefur farið fram á að EASA taki upp nýtt verklag við að greina með ítarlegri hætti orsök og áhættuatriði varðandi atvik í fluginu sem tekið verður í notkun í maí í vor en með nýrri aðferð verður hægt að leggja mat á hvar úrbóta sé þörf til að koma í veg fyrir að slíkt atvik endurtaki sig.

Fram kemur að núverandi aðferð við útreikningi á flugslysatíðni og tíðni alvarlegara atvika gefi upp skakka mynd af áhættunni sem er í raun og veru til staðar þar sem á vissum tilfellum hafi orðið auknin á atvikum á vissum sviðum þótt að tíðni alvarlegra flugslysa hafi lækkað almennt í heiminum samkvæmt tölum Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA).

Þar af leiðandi sé þörf á ítarlegri aðferð með nákvæmari samantekt við framkvæmd á mati á öryggismálum. - „Með þessu munum við einblína á mögulegan skaða sem vissar hættur hafa í för með sér í fluginu í stað þess að reikna úr styrkleika og tíðni á atvikum og slysum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga