flugfréttir

Röng úthlutun á hliði olli rýmingu í Leifsstöð

- Um 3.000 manns þurftu að fara aftur í gegnum vopnaleit

29. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:31

Miklar raðir mynduðust er flugstöðin var rýmd og voru allir látnir fara aftur í gegnum öryggisleit

Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli var nú seinnipartinn í dag rýmd af öryggisástæðum vegna mistaka sem átti sér við afgreiðslu á flugvél sem var að koma frá Grænlandi.

Bombardier Dash 8 Q200 vél frá Air Greenland lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 15:05 í dag eftir flug frá Nuuk en vegna mistaka þá fór vélin að röngu hliði flugstöðvarinnar sem gerði það að verkum að farþegar með vélinni fóru ekki í gegnum öryggisleit.

Farþegarnir með vélinni höfðu þegar farið í gegnum vopnaleit á Grænlandi en sú leit er ekki viðurkennd samkvæmt alþjóðlegum reglugerðum í fluginu og áttu farþegarnir því að gangast undir vopnaleit við komuna til Keflavíkur.

Farþegar fóru úr vélinni og blönduðust þeim farþegum sem voru komnir inn á öryggisvæðið á Keflavíkurflugvelli og þurfti því að rýma flugstöðina og láta alla gangast undir nýja vopnaleit.

Um 2 til 3 þúsund manns þurftu að fara aftur í gegnum vopnaleitina sem hefur valdið seinkun á flugi en óvíst er hversu langan tíma leitin mun taka.

Um 18 flugferðum á vegum Icelandair, WOW air og easyJet, sem áttu að fara frá kl. 15:50 til 18:30, hefur verið seinkað til klukkan 19:00 í kvöld.

Mynd úr Leifsstöð á Instagram:



Bombardier Q200 vél Air Greenland á Keflavíkurflugvelli árið 2015







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga