flugfréttir

30.000 feta hæðartakmark á A320neo vegna galla í hreyflum

- Hætta á ofhitnun smurningsbúnaði í PW1100G ef flogið er hærra

30. mars 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:23

Airbus A320neo þota GoAir

Stjórn indverska lágfargjaldafélagsins GoAir hefur beðið þá flugmenn, sem fljúga nýju Airbus A320neo þotunum, að halda sig í lægri flughæð í farflugi, sem er í 30.000 fetum, til að minnka álag á Pratt & Whitney hreyflanna, vegna smávægilegra galla sem á enn eftir að lagfæra.

Um er að ræða það vandamál sem var orsök þess að Qatar Airways neitaði að taka við fyrstu Airbus A320neo þotunum, fyrst allra flugfélaga, í desember árið 2015.

GoAir hefur fengið fimm Airbus A320neo þotur afhentar frá Airbus en framleiðandi hreyflanna, Pratt & Whitney, segir að til að koma í veg fyrir mögulegt vandamál í smurningsbúnaði í hreyflunum sé ráðlagt að fljúga vélunum ei hærra en sem nemur 30.000 fetum í stað 36.000 fetum.

„Okkur hefur verið gert að fljúga öllum Airbus A320neo þotunum í nýrri flughæð“, segir aðili innan GoAir, sem vill ekki koma fram undir nafni, en sú flughæð stangast á við reglur um hefðbundna flughæð sem farið er eftir af flugmálastjórn Indlands.

Í hærri flughæð verður loftið þynnra og við það þurfa hreyflarnir að vinna hraðar til að skila þeim krafti sem þarf til að knýja vélarnar áfram en við það eykst hitinn í hreyflunum.

Vegna vandamálsins með smurningskerfið í PW1100G hreyflinum má koma í veg fyrir ofhitnun með því að fljúga þeim aðeins lægra og hefur verið reiknað út að 30.000 fet sé örugg flughæð til að komast hjá vandanum.

Hinsvegar er ókosturinn sá að flug í lægri farflugshæð kallar á meiri eldsneytiseyðslu og í 30.000 fetum mun Airbus A320neo eyða frá 4 til 6% meira eldsneyti samanborið við flug í 38.000 fetum.

Aðili, sem er kunnugur málinu innan GoAir, segir að þetta sé samt einungis tímabundið á meðan ekki er búið að lagfæra vandamálið en gert er ráð fyrir að það verði á næstu dögum.

GoAir á von á því að fá 139 eintök til viðbótar af Airbus A320neo þotunni á næstu árum en árið 2017 mun félagið taka við 13 þotum til viðbótar við þær fimm sem þeir hafa nú þegar fengið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga