flugfréttir
WOW air pantar sjö þotur - Þar á meðal fjórar A330-900neo
- Flotinn mun tvöfaldast úr 12 þotum í 24 þotur árið 2018
Airbus A330-300 þota WOW air í flugtaki
WOW air hefur pantað sjö nýjar farþegaþotur af gerðinni Airbus sem munu bætast á næstu misserum við flotann.
Hæst ber að nefna fjórar nýjar Airbus A330-900neo þotur sem er endurbætt útgáfa af A330 þotunum sem Airbus
kynnti til leiks í júlí árið 2014 en vélin kemur með nýrri kynslóð Trent hreyfla sem munu gera vélarnar 14% sparneytnari.
Airbus A330-900neo vélarnar fjórar mun WOW air taka á leigu frá flugvélaleigunni CIT Aerospace International
og mun hver breiðþota taka 365 farþega í sæti og þar af 42 sæti sem verða breiðari og með meira sætabili.
Airbus A330-900neo þoturnar munu hafa flugþol up á 9.750 kílómera og gætu því flogið frá Keflavíkurflugvelli
til Hong Kong, Honolulu eða til Lima í Perú.
WOW air hefur í dag 12 þotur í flotanum
Þá hefur WOW air einnig keypt tvær Airbus A321 þotur til viðbótar beint frá verksmiðjum Airbus og pantað þar að auki eina A321neo þotu til viðbótar sem tekin er á leigu frá bandarísku flugvélaleigunin Air Lease Corporation.
Flugfloti WOW air samanstendur í dag af 12 þotum en fyrir lok þessa árs mun fjöldi vélanna fara upp í 17 þotur en með
nýju pöntuninni sem WOW air tilkynni um í dag mun félagið eiga von á því að vera komið með 24 þotur í flotann árið 2018.
„Við erum hreykin af því að geta boðið farþegum okkar upp á einn yngsta flugflotann í heiminum. Þessi viðbót gerir okkur kleift að vaxa og leita á ný mið á fjarlægum slóðum. Þá mun stærri og nýrri floti tvímælalaust styrkja okkur í síharðnandi samkeppni þar sem glænýjar flugvélar eru mun hagkvæmari í rekstri,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.